Ægir - 01.03.2004, Qupperneq 21
21
T Æ K N I
sig að í ákveðnum tilfellum geti
notkun á hliðarskrúfu við „andóf“
hjálpað verulega til að verjast því
að slíta línuna þar sem botn er
sérstaklega erfiður fyrir veiðarfæri
eins og línu, þar sem mikið er um
festur. „Við höfum dæmi um línu
sem var dregin á 140-150 faðma
dýpi á slæmum botni og festist
hún ítrekað. Með því að
„trimma“ bátnum til losnaði lín-
an til án þess að slitna. Þetta
sýndi okkur fram á hversu mikið
hliðarskrúfa getur hjálpað,“ segir
Árni og bætir við að það hafi
komið mörgum nokkuð á óvart
hversu miklu betur það fer með
mannskapinn og veiðarfærin þeg-
ar dregið er undan vindi og báru.
Fiskurinn festist
betur á önglinum
Kristbjörg ST-6 er búin Line
Control búnaðinum frá Elcon - en
búnaðurinn er samansettur af
stiglausum flæðilokum, vatns-
heldum stjórnbúnaði á dekki frá
Japan og aflestartæki og stillan-
legum mögnurum fyrir flæðiloka
frá Englandi. Báturinn er búinn
„Betra andófi“ - sjálfstýringu fyrir
hliðarskrúfu „Interface“ frá
Navitron Ltd., hliðarskrúfu sem
miðast við stærð bátsins frá Vet-
us, stiglausum flæðiloka með ör-
yggisventli og vansheldum
stjórnbúnaði á dekki. Þá hefur
báturinn Trax fiskveiðitölvu frá
Elcon - Trax fiskveiðiforritið,
línulögn, línudrátt með öngla- og
fiskateljurum frá Elcon og iðn-
tölvu - stjórnbúnaði frá Elcon.
Guðmundur Ragnar Guð-
mundsson, útgerðarmaður Krist-
bjargar, segir reynsluna af þessum
nýja búnaði frá Elcon afar góðan.
„Ég get nefnt sem dæmi að við
höfum verið að fá allt að tvö tonn
af ýsu yfir daginn, en ég tel að
það hefði verið útilokað áður en
þessi búnaður til línuveiða kom
til. Búnaðurinn gerir það að verk-
um að fiskurinn helst betur á
önglinum og þar með er minni
hætta á að missa hann. Við getum
því verið öruggari en áður um að
ná stærri fiskinum og það er mik-
ils virði. Í mínum huga er enginn
vafi að þetta kerfi á eftir að vekja
mikla athygli og margir eiga eftir
að nota það. Þetta er mikið fram-
faraspor,“ segir Guðmundur, sem
gerir Kristbjörgu út á línuveiðar
og leggur þorskinn upp hjá fisk-
vinnslunni Drangi á Drangsnesi,
þar sem hann er unninn í salt, en
ýsuna og aðrar aukategundir eru
seldar í gegnum Fiskmarkað
Vestfjarða.
Árni Marinósson (t.v.), framkvæmdastjóri Elcon, og Gunnlaugur M. Gunnarsson, tæknistjóri.
Vökvastjórnbúnaður fyrir hliðarskrúfurnar og andófið.
Hliðarskrúfan fyrir „andófið“.
Stjórnbúnaði er komið haganlega fyrir.