Ægir - 01.03.2004, Side 22
22
F E R K F I S K Ú T F L U T N I N G U R
Áherslur Nýfisks og einbeiting
snýr að framleiðslu á hágæða fiski
sem fluttur er ferskur á markað í
Mið-Evrópu, ekki síst í Benelux-
löndunum svonefndu. Þetta hefur
skilað góðu afurðaverði og telja
stjórnendur Nýfisks einboðið að
halda áfram á sömu braut.
Unnið í dag - á
markaði á morgun
Birgir Kristinsson og Einar
Sveinsson stofnuðu Fisk sf. fyrir
fimmtán árum. Viðskiptahug-
myndin strax í upphafi var sú
sama og keyrt er eftir í dag; það
er að selja nýjan fisk sem fluttur
er með flugi inn á markað í Mið-
Evrópu.
Árið 1996 var Nýfiskur síðan
stofnaður, eftir að gerðir voru við-
skiptasamningar við belgíska fyr-
irtækið Pieters sem eignaðist
fjórðungs hlut í rekstrinum árið
2001.
„Pieters er eitt af stærstu dreif-
ingar- og sölufyrirtækjum í sjáv-
arútvegi í Mið-Evrópu. Það sér-
hæfir sig í fullvinnslu á tilbúnum
réttum ásamt sölu og dreifingu
þeirra í verslanir, hótel og mötu-
neyti. Pieters var nýlega keypt af
norska sjávarútvegsrisanum Fjord
Seafood. Markmið Fjord með
þeim kaupum var að fá markaðs-
aðgang fyrir laxaafurðir fyrirtæk-
isins. Stærstur hluti fersks hvít-
fisks í vöruúrvali Pieters kemur
frá Nýfiski. Það er að sjálfsögðu
mikill heiður að fá að vera einn
aðalbirginn í svo stóru alþjóðlegu
fyrirtæki sem byggir allt sitt á
gæðum og góðri þjónustu. Við-
skiptasamböndin eru hverju fyrir-
tæki dýrmætust og samband okk-
ar við Pieters hefur verið giftu-
Nýfiskur í Sandgerði vaxandi í útflutningi á ferskum flugfiski:
Skýrar áherslur skipta öllu máli
„Ýmsir sem reynt hafa fyrir sér í fiskútflutningi hafa verið í viðskiptum
við marga aðila á hverju markaðssvæði. Fyrir vikið geta menn fljótt
komist í samkeppni við sjálfa sig. Við slíkar kringumstæður er erfitt að
stjórna ferðinni því afurðaverð getur skrúfast niður og þá skapast sú
hætta að menn hreinlega brotlendi rekstri sínum og hafi þá einnig
skaðað markaðinn fyrir aðra útflytjendur. Okkar nálgun hefur því verið
sú að skilgreina Nýfisk sem þjónustufyrirtæki gagnvart viðskiptavinum
erlendis sem valdir eru af kostgæfni og við vinnum náið með kaupend-
um til lengri tíma. Framleiðsla okkar stjórnast af óskum þeirra,“ segir
Birgir Kristinsson framkvæmdastjóri Nýfisks í Sandgerði.
Birgir Kristinsson, framkvæmdastjóri, (t.h.) og Gunnar Bragi Guðmundsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Nýfisks í Sandgerði.
Viðtal:
Sigurður
Bogi Sævarsson.