Ægir - 01.03.2004, Page 23
23
samlegt alveg síðan 1996 og verið
báðum fyrirtækjum til mikils
ávinnings,“ segir Birgir Kristins-
son.
Hráefnið er næstum
spriklandi
„Ég hef tröllatrú á möguleikum
fiskvinnslu á Suðurnesjum,“ segir
Gunnar Bragi Guðmundsson sem
fyrir tveimur árum réði sig sem
aðstoðarframkvæmdastjóra Ný-
fisks. „Gjöful og góð fiskimið eru
hér skammt undan, þaðan sem
við fáum landsins besta fisk.
Holdmikinn og ormalausan. Hrá-
efnis öflum við bæði með eigin
línubáti sem við gerum út -
Kristni Lárussyni GK 500 - og
svo kaupum við hráefni á fisk-
mörkuðum. Línuskipið er gert út
sem dagróðrabátur og fer þrjár
veiðiferðir í viku. Þannig tryggj-
um við að hráefnið er næstum
spriklandi þegar það kemur í hús.
Á fiskmörkuðunum er fiskurinn
keyptur, jafnvel óveiddur um há-
degi. Komið er að landi síðdegis
og aflinn kemur hingað inn í
vinnsluhúsið hjá okkur að kvöldi
eða eldsnemma að morgni.“
Vinnsla hjá Nýfiski hefst árla
morguns og þá liggur fyrir í gróf-
um dráttum hvað viðskiptavinir
úti vilja fá. „Endanlegar pantanir
eru að berast til okkar fram til kl.
14. Fiskurinn fer frá okkur um
klukkan 16 upp á Keflavíkur-
flugvöll, flugvélin fer utan um
kvöldmatarleytið og varan fer í
dreifingu um nóttina og er komin
í verslanir þegar verslanir opna
um morguninn. Krafan í nútíma
viðskiptaháttum verður æ ríkari
þannig að menn kaupa ekki vörur
inn á lager og klárlega ekki fersk-
an fisk. Verslunarstjórinn vill
panta á hverjum degi og helst
þegar útséð er hver sala dagsins
hefur verið. Að vera í þessari ná-
lægð við alþjóðlegan flugvöll tel
ég vera einn helsta styrkleika
sjávarútvegs á Suðurnesjum.
Kostirnir eru margir fleiri, svo
sem næg orka, góð stoðþjónusta,
nálægð við höfuðborgarsvæðið og
frábær höfn hér í Sandgerði,“ seg-
ir Gunnar Bragi.
Skapa sem mest verðmæti
Þeir Birgir og Gunnar Bragi segja
að þegar hugað er að aukinni
verðmætasköpun í sjávarútvegi
snúist baráttan ekki endilega um
að „... hátæknivæða sig til að geta
skrapað meira af hverju beini og
fylla vinnslusalinn af flóknum og
dýrum tækjum til að geta fram-
leitt einhver ósköp af iðnaðarvöru
með litla sem enga framlegð,“
eins og þeir komast að orði.
Miklu þýðingarmeira sé að hafa
skýrar áherslur í markaðsmálum
og hvernig sé hægt að skapa sem
mest verðmæti úr því góða hrá-
efni sem við höfum til umráða.
Í Sandgerði er einhver blómleg-
asti fiskiðnaður á Íslandi - og ör-
ugglega það byggðarlag sem
skapar mest verðmæti úr hráefn-
inu að öðrum stöðum ólöstuðum.
Þannig vinna bæði Nýfiskur ehf.
og Tros ehf. ásamt fleirum fersk-
fiskútflytjendum dýrar afurðir
sem sendar eru ferskar á markað
með flugi, en í Sandgerði er
einnig að finna „fullvinnslu“ á úr-
gangi frá þessum fyrirtækjum. Úr
honum eru unnar vörur til loð-
dýraeldis ásamt háþróuðu nasli
fyrir gæludýr hjá fyrirtækunum
Skinnfiski ehf. og Ífex ehf.
Keppt um karfann
„Til að skýra þetta enn frekar er
hægt að taka tölur frá árinu 2003
þar sem blandaður þorskur er að
skila okkur 300 kr. á hráefniskíló
í útflutningstekjur, á meðan
frystitogararnir voru að skila 150
kr. á hráefniskíló í útflutnings-
tekjur á fyrstu sex mánuðum þess
sama árs. Þá á eftir að taka auka-
afurðirnar með í dæmið sem eru
lítið nýttar á togurunum,“ segir
Gunnar.
Nýfiskur var stofnaður árið 1996.
Úr vinnsluhúsi Nýfisks í Sandgerði.