Ægir - 01.03.2004, Qupperneq 25
25
S K I PA S K O Ð U N
Matvælasvið Frumherja hf. hef-
ur séð um skoðun hreinlætis og
búnaðar í fiskiskipum í umboði
Fiskistofu um árabil. Stefnt er að
því að þessar skoðanir verða fram-
vegis framkvæmdar af skipaskoð-
unarmönnum um leið og búnað-
arskoðun fer fram, fáist til þess
leyfi Fiskistofu. Frumherji býður
þjónustu sína um allt land og er
fast verð fyrir hana, sama verð um
allt land. Innifalið í veðinu er all-
ur kostnaður vegna aðal- og
milliskoðanna þ.m.t. ferða- og
dvalarkostnaður skoðunarmanns.
Skoðunarmenn um allt land
Skoðunarmenn Frumherja hf. búa
allir yfir mikilli reynslu og þekk-
ingu á skipaskoðunum. Hver ein-
stakur skoðunarmaður hefur rétt-
indi til skoðunar á öllum verk-
þáttum skipaskoðunar, sem þýðir
að útgerðaraðili þarf einungis að
fá einn skoðunarmann um borð
til að framkvæma þær skoðanir
sem Siglingastofnun Íslands og
Fiskistofa gera kröfur um. Fái
skipaskoðunarmenn ekki að fram-
kvæma hreinlætisskoðanir í um-
boði Fiskistofu munu skoðunar-
menn Matvælasviðs Frumherja
hf. annast þær skoðanir sem hing-
að til. „Við munum leggja
áherslu á hafa þjónustuna góða,
enda erum við með skoðunar-
menn um allt land. Það er að
okkar mati mikilvægt að geta
þjónustað menn heima í héraði,
þjónustan verður þannig persónu-
legri og betri og auðveldara að fá
skoðunarmann með skömmum
fyrirvara ef eitthvað kemur upp
á,“ segir Stefán Hans Stephensen.
Stefán segir að það verði að koma
í ljós hvernig þeim skoðunarfyrir-
tækjum reiðir af í samkeppninni
sem þegar hafa hafið rekstur, en
hann minnir á að hjá þessum fyr-
irtækjum eru nú samtals 16 skoð-
unarmenn, en hjá Siglingastofnun
voru þeir 14. „Þetta er ekki stór
kaka, veltan í þessu er kannski
um sjötíu milljónir króna og því
er ekki grundvöllur fyrir mörg
fyrirtæki í þessari grein,“ segir
Stefán. Mikið er um það að félög
smábátaeigenda um land allt óski
eftir tilboðum frá skoðunarstof-
unum í þessa þjónustu. Í því sam-
bandi er vert að benda á að nauð-
synlegt er að öll tilboð séu gerð á
sama grunni og innifeli sömu
þjónustuþætti. „Við hjá Frum-
herja höfum t.d. orðið var við það
að sumir samkeppnisaðilar okkar
eru að bjóða þjónustu s.s. hrein-
lætisskoðanir í umboði Fiski-
stofu, sem þeir hafa ekki réttindi
til að inna af hendi. En þetta fer
hins vegar ágætlega af stað, það er
mikið að gera þessa dagana í
skoðun smábátanna, dagabátarnir
máttu til dæmis byrja um mán-
aðamótin. Áður en bátarnir fara á
sjó þarf að skoða þá og að skoðun
lokinni fá bátarnir haffærnisskír-
teini, sem gefin eru út hjá Sigl-
ingarstofnun Íslands á Ísafirði“
segir Stefán.
Jákvætt skref
Stefán segir það hafa verið já-
kvætt skref að færa þessa þjón-
ustu til einkaaðila, en hann telur
að ríkið hefði mátt kynna þessa
breytingu betur áður en það
sleppti hendinni af þessari þjón-
ustu. „Það hefur satt best að segja
komið mest í okkar hlut að kynna
þessa þjónustu, sem út fyrir sig er
allt í lagi vegna þess að við þekkj-
um hana mjög vel. En ég tel engu
að síður að ríkið hefði mátt
standa betur að kynningu á
þessu,“ segir Stefán Hans Steph-
ensen.
„Það er að okkar mati mikil-
vægt að geta þjónustað menn
heima í héraði, þjónustan
verður þannig persónulegri og
betri og auðveldara að fá skoð-
unarmann með skömmum fyrir-
vara ef eitthvað kemur upp á,“
segir Stefán Hans Stephensen.
Leggjum áherslu á þjónustuna
- segir Stefán Hans Stephensen, tæknistjóri hjá Frumherja hf.
Frumherji hf. er eitt þeirra fyrirtækja sem hef-
ur fengið starfsleyfi til reksturs skoðunarstofu
skipa. Starfsmenn skipaskoðunarsviðs Frum-
herja þekkja vel til skoðunar skipa, enda hafa
þeir starfað hjá Siglingastofnun í mörg ár.
Þetta eru Stefán Hans Stephensen, tæknistjóri,
og skoðunarmennirnir eru Axel Axelsson í
Reykjavík, Guðmundur G. Guðmundsson í
Grundarfirði, Þorsteinn Þorsteinsson á Akur-
eyri og Högni Skaftason á Fáskrúðsfirði.