Ægir - 01.03.2004, Blaðsíða 26
26
T Æ K N I
Í þessari nýju vél er hægt að
vinna nánast hvaða fiskitegund
sem er en fram að þessu hafa inn-
mötunarvélar aðallega komið að
notum við vinnslu á karfa og ufsa.
Er unnt að keyra allt frá heilum
flökum til minnstu fiskbita í
gegnum nýju Valka RapidFeed
vélina sem er bæði einföld og
auðveld í notkun.
Innmötunarstýringin í Valka
RapidFeed byggist á tveimur
dreifurum og snúningsvog á milli
þeirra sem vigtar hráefnið ná-
kvæmlega. Ferlið gengur þannig
fyrir sig að hráefninu er sturtað
sjálfvirkt úr kari á innmötunar-
band og þaðan berst það inn í
Valka RapidFeed vélina. Hún
gangsetur innmötunarbandið
þegar hráefni vantar í fyrri
dreifarann sem dreifir vel úr hrá-
efninu áður en það fer inn á snún-
ingsvogina. Hún vigtar hæfilegan
skammt í hvert skipti, yfirleitt 1-
2 kg og sleppir honum í síðari
dreifarann sem dreifir enn frekar
úr hráefninu áður en það fer inn á
frystinn. Vélin tryggir að hráefn-
isflæðið verði sem allra næst óska-
gildinu, t.d. 1000 kg/klst, og að
hráefnið, sem kemur úr voginni,
dreifist þannig á færibandið inn í
frystinn að auðvelt sé að laga það
til fyrir lausfrystinguna.
Jafnara hitastig -
aukin afköst
„Valka RapidFeed vélin gjör-
breytir innmötun og dreifingu
hráefnis í lausfrysta,“ segir Ísleif-
ur Arnarson, verkstjóri hjá
Granda hf. á Norðurgarði. „Lang-
mesta breytingin eru stóraukin
og stöðug afköst. Áður voru tveir
starfsmenn að raða um 600
kg/klst. en nú ráða þeir vel við
1000 kg/klst. Í sumum tilfellum
höfum við náð að fækka starfs-
mönnum, sem eru að mata hrá-
efni inn í frysti, úr fjórum niður í
tvo, sem aftur þýðir 50% sparnað
bara í launakostnaði í viðkomandi
Helgi Hjálmarsson kynnir „Valka Rapid Feed“ vélina
á sjávarútvegssýningunni í Brussel:
Athyglisverð nýjung
í lausfrystitækni
Allt frá því að lausfrystitækni var innleidd í fiskvinnslu hefur ójafn-
vægi í dreifingu hráefnis inn í frysti verið einn stærsti flöskuhálsinn í
kerfinu. Fyrirtækið Valka ehf. hefur þróað nýja vél, Valka RapidFeed, til
að leysa úr þessum vanda. Grandi hf. verið með þessar nýju vélar í
prufukeyrslu og þar hafa þær reynst vel. Ísleifur Arnarson, verkstjóri
hjá Ganda, segir vélarnar hafa gjörbreytt innmötun og dreifingu hrá-
efnis í lausfrysta og sparað vinnuafl.
Innmötunarstýringin í Valka Rapid Feed byggist á tveimur dreifurum og snúningsvog
á milli þeirra sem vigtar hráefnið nákvæmlega.