Ægir - 01.03.2004, Blaðsíða 27
27
T Æ K N I
hráefni,“ segir Ísleifur. „Jafnt
streymi inn á lausfrystinn tryggir
einnig að frystingin er ávallt
keyrð með hámarks afköstum.
Það auðveldar líka stjórnun á
frystingunni. Jafnt álag tryggir
jafnt hitastig í frystinum og að
framleiðslan sé hvorki fryst of
mikið eða of lítið.
Hráefnismeðhöndlun er einnig
mjög góð og því er engu fórnað
varðandi gæði með því að nota
dreifarann. Þvert á móti hefur
hann tryggt að hráefnið kemur
heldur kaldara en áður inn í fryst-
inn.“
Í desember sl. keypti Grandi
nýjan 2500 kg/klst frysti og hafði
Ísleifur áhyggjur af því við kaup-
in að geta ekki raðað nægjanlega
skilvirklega inn í hann til að nýt-
ingin yrði sem best. En eftir að
hafa prófað nýju Valka RapidFeed
vélina fyrir annan minni frysti í
Granda, sannfærðist hann um að
tvær nýjar vélar myndu duga til
að hámarka nýtinguna á nýja
frystinum. Það hefur nú gengið
eftir. Vel gengur að fullnýta fryst-
inn og þarf færra starfsfólk til
verksins en Ísleifur hafði þorað að
vona.
Ánægt starfsfólk
„Áður tapaðist mikil tími vegna
sveiflna í vinnslu,“ segir Ísleifur.
„Stundum þurfti að stöðva fryst-
inn vegna of mikillar hleðslu og
ónógrar frystingar á hráefninu eða
afköstin minnkuðu þegar hann
var vannýttur. En eftir að Valka
RapidFeed vélarnar komu til sög-
unnar hefur verið hægt að ná
fram hámarksnýtingu á bæði
starfsfólki og frystinum, með sér-
stakri afkastastillingu fyrir hverja
fisktegund. Aðeins þarf að velja
hvaða hráefni á að vinna úr lista í
forritinu á vélinni til að tryggja
að ávallt náist besti árangur í
vinnslunni.
Starfsfólkið er mjög ánægt með
nýju innmötunina því starfið er
nú miklu auðveldara en áður því
nú fær það ávallt hæfilegt magn
inn á innmötunarbandið til að
jafna úr.
Þá auðveldar það mjög allt eft-
irlit og umsjón með frystingunni
að Valka RapidFeed vélin er
tengd við frystinn og innmötun-
arböndin inn á hann - því er
nægjanlegt að skipta um vinnslu-
lykil á Valka RapidFeed vélinni
því að allar stillingar varðandi
lausfrystinn uppfærast þá sjálf-
virkt. Þá er unnið að uppfærslu á
vinnslueftirlitskerfinu hér í hús-
inu og þá verður unnt að fylgjast
með afköstunum og skipta um
vinnslulykla frá verkstjóraskrif-
stofunni. Nýting á mannskap og
frysti er 100% og hráefnismeð-
ferðin er afbrags góð. Er hægt að
biðja um meira?“ spyr Ísleifur
Arnarson, verkstjóri hjá Granda
hf.
Kynnt á sjávarútvegssýning-
unni í Brussel
Valka RapidFeed vélin er búin
stýritölvu sem geymir upplýsing-
ar um allar þær fisktegundir,
bitastærðir og gerðir sem verið er
að verka í vinnslunni. Tölvan er
auðveld í notkun og er unnt að
breyta öllum stillingum á mjög
einfaldan hátt, þ.á.m. afköstum
og skammtastærðum. Þá er unnt
að tengja tölvuna við hugbúnað-
inn í lausfrystinum og stilla
þannig nákvæmlega fyrir sér-
hverja afurð afköst, frystitíma og
hraða á innmötunarböndum.
Þetta hefur einmitt verið gert í
Granda hf. með aðstoð Naust
Marine hf. og hefur reynst auð-
velda mjög stýringu á frystinum.
Jafnframt er hægt að halda skrá
yfir sleppingar úr snúningsvog-
inni og fá þannig grafískt yfirlit
yfir afköstin.
Valka RapidFeed vélin er þróuð
og framleidd af Helga Hjálmars-
syni, vélaverkfræðingi og forrit-
ara, sem hefur áralanga reynslu í
þróun vinnslutækja og hátækni-
lausna til notkunar í matvælaiðn-
aði. Helgi er jafnframt eigandi
Völku, sem hann stofnaði á síð-
asta ári, með aðsetur í Kópavogi.
„Af einhverjum ástæðum er inn-
mötun sá þáttur sem oft vill
gleymast í framleiðsluferli. Samt
er ljóst að án skilvirkrar innmöt-
unar getur heildarkerfið varla
gengið upp,“ segir Helgi.
Valka RapidFeed vélin var þró-
uð í samstarfi við Granda hf. og
Samstarfsvettvang sjávarútvegs
og iðnaðar, sem hefur styrkt verk-
efnið fjárhagslega. Nýlega keypti
Nesfiskur í Garði tvær vélar af
Helga, en vélin verður formlega
sýnd í fyrsta skipti dagana 4.-6.
maí nk. á sjávarútvegsýningunni í
Brussel, sem er stærsta sýning
sinnar tegundar í heiminum. Ef
viðbrögðin þar verða jafn góð og
hjá Granda og Nesfiski, má búast
við talsverðum áhuga meðal
gesta.
„Valka Rapid Feed vélin gjörbreytir innmötun og dreifingu hráefnis í lausfrysta,“ segir
Ísleifur Arnarson, verkstjóri hjá Granda hf. á Norðurgarði.