Ægir - 01.03.2004, Page 28
28
S Æ B J Ú G U
Tilraunaframleiðsla á
sæbjúgum er hafin í
Grundarfirði á vegum
Reykofnsins-Grundar-
firði ehf. Að því félagi
standa Reykofninn
hf. í Kópavogi, Fisk-
iðjan Skagfirðingur
og Byggðastofnun.
Á undanförnum árum hefur
Reykofninn ehf. í Kópavogi unn-
ið að því að þróa afurðir úr sæ-
bjúgum fyrir Asíumarkað.
Halkion SH úr Stykkishólmi
stundaði tilraunaveiðar á sæbjúg-
um í Breiðafirði á sl. sumri og á
liðnu hausti var síðan stofnað fyr-
irtæki um vinnslu á sæbjúgum,
sem nefnist Reykofninn-Gundar-
firði ehf. Sú vinnsla er rétt nýlega
hafin og því ekki hægt að segja að
mikil reynsla komin á hana. Kári
Pétur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Reykofnsins-Grundarfirði
ehf., segist gera sér von um að
unnt verði að halda uppi jafnri og
stöðugri vinnslu, en það fari þó
vitaskuld eftir því hvernig gangi
að fá hráefni. Tveir bátar hafa ver-
ið að afla hráefnis fyrir vinnsluna
í Grundarfirði, Fjóla BA-150 og
Sandvík SH-53 úr Stykkishólmi.
Sæbjúgun eru veidd í sérstakan
sæbjúgnaplóg, en einnig koma
þau oft sem meðafli í önnur veið-
arfæri.
Óvissa um
útbreiðslu sæbjúgna
Ekki er vitað um útbreiðslu sæ-
bjúgna við Ísland, hún er ein af
mörgum spurningum sem reynt
verður að fá svarað á næstu miss-
erum. Kári Pétur segir að rætt
hafi verið við Hafrannsóknastofn-
unina um að kanna skoða mögu-
lega útbreiðslu á sæbjúgum.
Gríðarleg rýrnun verður við
vinnslu á sæbjúgum, aðeins um
5% sæbjúgna halda sér eftir að
þau hafa verið þurrkuð og reykt.
Langstærsti markaðurinn fyrir
sæbjúgu er í Asíu, en þar er því
m.a. trúað að í þeim sé falinn
mikill lækningamáttur.
Brimbúturinn
Í fróðlegri grein sem Sólmundur
T. Einarsson ritaði í Ægi fyrir
nokkrum misserum um sæbjúgu
kemur fram að þau séu í flokki
skrápdýra, sem er skipt í fimm
ættkvíslir. Tvær þeirra hafa efna-
hagslega þýðingu, tegundirnar
Aspidochirote og Dendrochirote.
Undir þessum ættkvíslum eru
sæbjúgu, en þau hafa þykkan og
leðurkenndan skráp. Munnarmar
Aspdochirote sæbjúgna eru marg-
ir og smáir, en einfaldir í bygg-
ingu og greinóttir. Þeir eru not-
aðir til þess að skófla sandi og leir
upp í munnopið. Munnarmarnir
hjá Dendrochirote-sæbjúgunum
eru hins vegar langir, fíngerðir og
greinóttir. Einnig eru þeir slím-
kenndir og notaðir til þess að
veiða sviflæg dýr í sjó eða ýmsar
rotnandi leifar þörunga og dýra af
yfirborði botnsins. Skrápur sæ-
bjúgna myndar sjófylltan hólk
utan um líffærin. Hann sam-
anstendur af nokkrum vefjalögum
og er aðalhlutinn seigt veflag,
sem að mestu leyti er gerður úr
bindivef. Inn í þetta veflag liggja
smásæar kalkagnir, svokallaðar
„spíkúlur“ sem hafa það hlutverk
að styrkja skrápinn og gefa slím-
kenndu yfirborði hans nokkra
núningsmótstöðu. Við Ísland
finnast nokkrar tegundir sæ-
bjúgna, en Sólmundur segir í
grein sinni að sú tegund sem
helst komi til greina í nýtanlegu
samhengi sé brimbútur, en hann
er algengur á grunnsævi nær allt í
kringum landið, þó mest inni á
fjörðum. Í Faxaflóa og Breiðafirði
hefur t.d. fundist þónokkuð
magn af brimbút og veiðst sem
meðafli í hörpudisksplóg. Hann
finnst aðallega á hörðum botni
þar sem strauma gætir, en sjald-
gæfur við suðurströndina.
Sæbjúgu unnin í Grundarfirði
Jónsvör 3 - 190 Vogar
Símar 424-6650 & 894-2845 - Fax 424-6651
www.beitir.com - holafsson@islandia.is
Framleiðum línu- og netabúnað úr rústfríu stáli
Erum einnig með umboð fyrir færeyskar handfærarúllur frá Oikvind