Ægir - 01.03.2004, Page 29
29
S K I PA S K O Ð U N
„Ég er hlynntur þessum
breytingum, en hins
vegar tel ég að Siglinga-
stofnun hefði mátt
standa betur að þeim
og um það hygg að
skoðunarmenn séu al-
mennt sammála. Ég tel
ákveðna hnökra vera á
framkvæmdinni,“ segir
Hálfdan Henrysson,
framkvæmdastjóri
Skipaskoðunar Íslands,
en hann var áður deild-
ar- og verkefnisstjóri
hjá Siglingastofnun.
„Ég tel að fyrirkomulag skoð-
unarinnar eigi eftir að ganga
ágætlega hjá einkafyrirtækjum.
Við þekkjum það að flokkunarfé-
lögin hafa líka sinnt skoðunum
skipa og það hefur gengið ágæt-
lega fyrir sig. En svo geta menn
auðvitað haft allskyns skoðanir á
einkavæðingu,“ segir Hálfdan.
„Við finnum það í samtölum
okkar við sjómenn að þeim finnst
að verðið fyrir skoðunina hafi
hækkað og kenna okkur um, en
þá gleyma menn því að gjaldið
hækkaði hjá Siglingastofnun um
síðustu áramót og var orðið tölu-
vert hærra en við erum að bjóða
þetta í dag. Skipaskoðunargjaldið
lækkaði raunar um helming, en á
móti kom að Siglingastofnun
gerði eigendum skipa og báta að
greiða allan kostnaðinn, ferða-
kostnað og fleira. Þegar upp var
staðið hækkaði gjaldskráin því
verulega og gjaldið var nokkru
hærra en fyrirtækin eru nú að
innheimta fyrir skoðunina. Við
teljum það því ekki rétt þegar
sagt er að skoðunargjaldið hafi
hækkað verulega þegar einkafyr-
irtæki tóku þessa þjónustu yfir 1.
mars sl. og ég tel að almennt
megi segja að þessi gjöld séu al-
mennt mjög sanngjörn,“ segir
Hálfdan.
Eigendur eru Hönnun og
Gemini
Eigendur Skipaskoðunar Íslands
ehf. eru verkfræðistofan Hönnun
hf. og ráðgjafarfyrirtækið Gemini
sf. Hönnun hf. er ein stærsta
verkfræðistofa landsins og annast
fjölbreytt verkefni og hefur yfir
að ráða fjölda sérfræðinga í hinum
ýmsu faggreinum.
Gemini sf. er ráðgjafarfyrirtæki
sem hefur sérhæft sig í gæðamál-
um og eftirlitskerfum með vél-
búnaði í stóriðjufyrirtækjum.
Auk Hálfdans starfar hjá Skipa-
skoðun Íslands Steingrímur G.
Sigurðsson, skipaskoðunarmaður í
Vestmannaeyjum, en hann starf-
aði áður hjá Siglingastofnun í
Eyjum.
Skrifstofa Skipaskoðunar Ís-
lands ehf. er í aðalstöðvum Hönn-
unar hf í Reykjavík, en Hönnun
hf rekur starfsstöðvar á Akranesi,
Akureyri, Egilsstöðum, Reyðar-
firði, Kirkjubæjarklaustri, Hvols-
velli og Selfossi.
Lynghálsi 4 - 110 Reykjavík
Sími: 588 8881 - Fax: 588 8944
Heimasíða: simnet.is/jonbergsson - E-mail: jonbergsonehf@simnet.is
Einkavæðing var ágætt skref
- segir Hálfdan Henrysson, framkvæmdastjóri Skipaskoðunar Íslands