Ægir - 01.03.2004, Síða 32
32
T Æ K N I
Uppgötvun Ægis, sem hann
hefur raunar verið að vinna að í
rúma tvo áratugi, er stórmerkileg
og til þess fallin að ná mikilli út-
breiðslu um allan heim á næst-
unnil. „Það er ljóst að þessi verð-
laun eru gríðarlega mikilvæg fyr-
ir mitt litla fyrirtæki. Til þessa
hefur Europa filter kerfið verið
fyrst og fremst nokkuð þekkt hér
í Svíþjóð, Noregi og á Íslandi, en
nú eru allir möguleikar á að
markaðssetja tækið mun víðar.
Þessi verðlaun koma okkur á
kortið svo um munar,“ segir Ægir
og það er greinilegt að hann er
vart búinn að átta sig enn á að
hafa hlotið verðlaunin. „Það má
segja að þetta sé eins og að fá
Óskarinn í þessum viðhalds-
geira,“ segir Ægir.
„Stora Produktivetpriset“
Umrædd sýning í Gautaborg er
haldin annað hvert ár, en hún er
klárlega stærsta sýning sinnar
tegundar í Skandinavíu, þar sýna
á bilinu 4-500 fyrirtæki það
nýjasta varðandi vélar o.fl. í þeim
efnum. „Það voru sautján hug-
myndir tilnefndar til verðlaun-
anna, sem kallast á sænsku „Stora
Produktivetetspriset“ og úr þeim
voru fimm valdar til frekari skoð-
unar. Það kom mér afar skemmti-
lega á óvart að hljóta verðlaunin.
Þetta opnar ýmsar dyr fyrir mér
og það er ljóst að verðlaunin hafa
það í för með sér að við þurfum
að setja aukinn kraft í að koma
þessu á markað. Nú þegar hafa
nokkrir stórir aðilar haft samband
við mig og vilja koma að þessu
með mér. Ég á eftir að fara yfir
málin og meta næstu skref,“ segir
Ægir.
Öflugt tæki
Fyrirtæki Ægis, sem framleiðir
Europa filter olíuhreinsikerfið,
heitir einfaldlega Europafilter
AB. Fyrirtækið hefur einkarétt á
Europa filternum í Evrópu,
Bandaríkjunum og Japan. Europa
filterinn hefur þá sérstöðu að taka
bæði til sín vatn og föst óhrein-
indi í olíunni, allt niður í agna-
stærðina 0,1 míkron. Þessi olíu-
hreinsikerfi eru tengd sem fram-
hjáhlaupskerfi og eru sívinnandi
við að hreinsa olíu þeirra kerfa
sem þau eru tengd við.
Sían er fastsett í síuhús sem er
úr ryðfríu stáli, olíunni er dælt
inn í það með dælu sem er hluti
af kerfinu. Til að fylgjast með
ástandi síunnar er tengdur þrýsti-
mælir við síuhúsið sem mælir
þrýsting olíunnar inni í húsinu,
jafnframt fylgir öllum kerfum frá
Europa filter sjónglas/flæðismælir
með hjóli þar sem hægt er að sjá
rennslið.
Olíumagnið sem á að hreinsa
ræður stærð hreinsikerfisins.
Mun lengri endingartími véla
með notkun Europa filter
kerfisins
Með því að halda olíunni hreinni
margfaldast endingartími hennar
og þannig minnkar kostnaður
vegna olíuskipta sem og slit á
núningsflötum sem þýðir minni
viðhaldskostnað. Það hefur
margoft komið fram að 80-90%
bilana má rekja til óhreininda í
olíu og því er hér um gríðarlega
Íslendingurinn Ægir Björnsson slær í gegn með uppgötvun sína:
Europa filterinn fékk
„Óskarinn“ í Gautaborg
Það er alltaf ánægjulegt þegar Íslendingar gera það gott í útlöndum.
Siglfirðingurinn og stýrimaðurinn Ægir Björnsson, sem hefur verið bú-
settur í Smögen í Svíþjóð síðustu 34 ár, frá árinu 1969, hefur sannarlega
slegið í gegn með uppgötvun sína, sem hann kallar Europa filter olíu-
hreinsikerfið fyrir smurolíur og glussa. Hann gerði sér lítið fyrir og fékk
fyrstu verðlaun á risastórri vörusýningu í Gautaborg, sem var haldin
dagana 9. til 12. mars sl. og skákaði þar mörgum stórfyrirtækjum.
Ægir Björnsson með
verðlaunagripinn sem
hann fékk til staðfest-
ingar á „Stora Produkti-
vetetspriset“ í Gauta-
borg í mars. Verðlaunin
segir Ægir að opni sér
og uppgötvun sinni ótal
nýjar leiðir.