Ægir - 01.03.2004, Blaðsíða 33
33
T Æ K N I
mikilvæga fyrirbyggjandi aðgerð
að ræða og sparar verulega fjár-
muni.
Hér á landi hefur þetta kerfi
smám saman verið að ryðja sér til
rúms, yfir 40 bátar og skip hafa
Europa filter kerfi til hreinsunar á
glussaolíu og spennaolíu. Mergi
ehf. er umboðsaðili fyrir Europa
filter hér á landi.
Örlítið vatnsinnihald í
olíunni getur haft alvarlegar
afleiðingar
Ægir segir augljóst að því
hreinna sem smurningsefnið er,
því betra. „Jafnvel örlítið vatns-
innihald eins og 0,01% er nægj-
anlegt til að lækka líftíma legu
um helming. Þetta þýðir að það
borgar sig að hafa smurninguna
ávallt eins lausa við vatn og
óhreinindi eins og mögulegt er.
Hvað gerum við til að koma í veg
fyrir rakann í dag? Jú, við síum
olíuna eða skiljum hana í olíu-
skilju þ.e.a.s. við notum sömu að-
ferðir og hafa verið notaðar síðast-
liðin 50 til 60 ár. Það sem við
verðum að gera er að hreinsa olí-
una til að koma í veg fyrir vand-
ræðin. Og ef olían á að hreinsast
vel verður hún að vera það mikil
að allar agnir niður í 0,1
mikrometer náist burt ásamt öllu
vatni hvort sem það er uppleyst
eða laust.
Við viljum vernda viðkvæm-
ustu hluti vélarinnar og koma í
veg fyrir oxideringu (sýrumynd-
un) í olíunni. Ef við gerum það
ekki verðum við að stytta tímann
milli olíuskipta. Vissir hlutir vél-
arinnar hafa rýmd milli slitflata
0,5-1,0 mikrometra. „Oxidation“
agnir eru 0,3 - 4,3 mikrometrar.
Ef við höfum hundruð milljóna
agna og vatn á ferðinni myndast
núningsmótstaða og þar með „ox-
idering“ sem smátt og smátt
ruglar jafnvæginu í smureigin-
leikum olíunnar. Þannig minnka
smureiginleikarnir og við verðum
að skipta um olíu,“ segir Ægir.
Statoil mælir með kerfinu
„Það er einfaldlega þannig að olía
er fyrir vélar það sama og blóð í
manninum. Ef olían bilar, eru
vélarnar fljótar að gefa eftir. Við
erum búnir að færa sönnur á að
Europa-filterinn lengir endingar-
tíma véla verulega og þetta hafa
margir af okkar viðskiptavinum
staðfest. Ég get sérstaklega nefnt
að stórfyrirtækið Statoil hefur
notað þetta kerfi með mjög góð-
um árangri og þeir hafa gefið mér
leyfi til þess að vitna til góðrar
reynslu þeirra af kerfinu í minni
markaðssetningu. Það er mér að
sjálfsögðu gríðarlega mikilvægt
að geta sagt að fyrirtæki eins og
Statoil mæli eindregið með notk-
un á þessu kerfi. Það er ekki lítils
virði í minni markaðsfærslu.
Statoil-menn segja m.a. að það sé
ekki til betra hreinsunarkerfi í
heiminum fyrir smurolíur og
glussa. Svona einkunn svo og
þessi verðlaun gefur manni auð-
vitað byr undir báða vængi,“ seg-
ir Ægir.
Stýrimaður að mennt
Eins og áður segir hefur Ægir
Björnsson búið í Svíþjóð undan-
farin rösklega þrjátíu ár. Hann er
stýrimaður að mennt, útskrifaðist
úr Stýrimannaskólanum árið
1967 og var um tíma stýrimaður
á flutningaskipinu Haferninum.
Eftir að hann flutti til Svíþjóðar
árið 1969 starfaði hann að ýmsu,
m.a. í þjónustufyrirtæki við olíu-
hreinsunarstöð. Árið 1979 hóf
hann að snúa sér að því sem hann
er að fást við í dag og árið 1990
stofnaði hann Europafilter AB.
Nú þegar eru starfsmenn á vegum
fyrirtækisins í Svíþjóð og Noregi,
auk sölumanna. Ársveltan er 13
milljónir sænskra króna, eða sem
næst 130 milljónir króna. Full-
víst má telja að þessi veltutala
eigi eftir að hækka verulega á
næstunni, í kjölfarið á áðurnefnd-
um verðlaunum.
Á annað hundrað
kerfi hér á landi
Gunnar Sæmundsson hjá Mergi
ehf. segir að Europa filter kerfið
hafi sannað sig hér á landi. Hann
segir að nú þegar sé búið að selja
á annað hundrað kerfi um borð í
stærri og smærri skip hér á landi
og sömuleiðis hefur kerfið sannað
gildi sitt í fjölbreyttri atvinnu-
starfsemi í landi.
Europa filterinn hefur
þá sérstöðu að taka
til taka bæði til sín
vatn og föst óhrein-
indi í olíuinni, allt
niður í agnastærðina
0,1 míkron. Hér á
landi hafa verið seld
á annað hundrað slík
kerfi.
Um verðlaunaveitinguna hefur verið fjallað í fjölmörgum sænskum blöðum.