Ægir - 01.03.2004, Síða 35
35
B Á TA S M Í Ð I
Sömuleiðis er Bátagerðin Sam-
tak með í smíðum 30 tonna ferju
fyrir Færeyinga, af gerðinni 1340,
en hún verður afhent eftir rúmt
ár.
Snorri Hauksson hjá Samtaki
segir að fyrirtækið hafi ekki farið
út í að markaðssetja þessar ferjur
erlendis, en hann bætir við að
væntanlega væri fyrir löngu búið
að smíða slíka ferju fyrir Færey-
inga ef reglur þar í landi hefðu
ekki komið í veg fyrir það.
Mikil spurn eftir Viking 1135
Samtak er einnig með í smíðum
tvo Víking 1135 fiskibáta. „Þess-
ir bátar hafa verið að seljast mjög
vel. Það má segja að við séum
eingöngu að smíða báta sem eru
yfir fimmtán tonnum. Það eru
þeir bátar sem hafa verið að selj-
ast best. Í krókakerfinu var
mönnum haldið innan við sex
tonn, en með breytingu á lögun-
um upp í fimmtán brúttótonn
vildu margir stækka báta sína.
Þessari eftirspurn höfum við verið
að mæta. Menn hafa sem sagt ver-
ið að endurnýja báta sína, útgerð-
ir hafa sameinast og bátum fækk-
að í tengslum við það o.s.frv. Við
höfum fyrirliggjandi pantanir í
báta fram á næsta ár, þannig að
það er mjög líflegt í þessu um
þessar mundir,“ segir Snorri.
Fjórtán manns starfa hjá Sam-
taki.
Fyrirspurnir erlendis
Snorri segir að töluvert sé um fyr-
irspurnir erlendis frá. „Við erum
hins vegar það mikið bókaðir hér
heima að við höfum ekki getað
sinnt erlenda markaðnum sem
skyldi. En það er ljóst að við
munum huga að því að sinna er-
lenda markaðnum, því það er
ljóst að innlendi markaðurinn
mun einhvern tímann mettast og
undir það þurfum við að búa okk-
ur með því að styrkja stöðu okkar
erlendis,“ segir Snorri Hauksson.
www.isfell.is
Ísfell ehf • Fiskislóð 14 • P.O.Box 303 • 121 Reykjavík • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
Ábót, sigurnaglalína
og allar gerðir af beitu
Bátagerðin Samtak ehf. í Hafnarfirði:
Smíðar ferju fyrir Sjóferðir
Bátagerðin Samtak ehf. í Hafnarfirði er nú
með í smíðum ferju fyrir Sjóferðir Hafsteins og
Kiddýjar á Ísafirði Um er að ræða tólf metra
langan sérsmíðaðan bát fyrir farþegaflutninga,
sem er byggður upp úr Víking 1135 bátnum.
Þessi nýja ferja er 30 mílna hraðbátur með
tveimur 450 hestafla Cummins vélum frá Véla-
sölunni og tekur hún 35 farþega í sæti. Ferjan
verður væntanlega afhent í maí nk.
Nýjasta afurð Bátagerðarinnar Samtaks - Venni GK-167, smíðaður
fyrir útgerðina Nónu ehf. í Grindavík.