Ægir - 01.03.2004, Page 36
36
V I N N U L Ö G G J Ö F
Í fyrstu grein reglugerðarinnar
er því lýst að tilgangur hennar sé
að tryggja öryggi og heilbrigði
skipverja á íslenskum fiskiskip-
um. Fram kemur að lágmarksald-
ur skipverja skuli vera 15 ár og
þeir sem séu undir 18 ára aldri
skuli lúta ákvæðum reglugerðar
um vinnu barna og unglinga.
48 stunda vinnuvika
Vinnutími á fiskiskipum skal
samkvæmt reglugerðinni ekki
vera lengri en 48 stundir á viku.
Mörk vinnu- og hvíldartíma
skulu vera annaðhvort: Vinnutími
sem ekki má vera lengri en 14
klst. á hverju 24 klst. tímabili og
72 klst. á hverju 7 daga tímabili
eða hvíldartími skal að lágmarki
vera 10 klst. á hverju 24 klst.
tímabili og 77 klst. á hverju 168
klst. tímabili. Hvíldartíma er
heimilt að skipta í tvö tímabil og
skal annað vara að lágmarki í 6
klst. Tímabilið milli tveggja
hvíldartíma má ekki vera lengra
en 14 klst.
Fram kemur í reglugerðinni að
skipstjóri geti krafist þess að
skipverjar vinni þann fjölda
vinnustunda, sem nauðsynlegur
sé fyrir öryggi skipsins, allra um
borð, búnaðar eða farms, eða til
að koma til hjálpar öðrum skip-
um eða mönnum í sjávarháska.
Eiga kost á heilsufarsskoðun
Þeir skipverjar sem vinna nætur-
vinnu skulu eiga kost á heilsu-
farsskoðun áður en þeir eru ráðnir
til starfa, meðan þeir eru í starfi
og þegar við á eftir að þeir eru
hættir störfum, „enda séu starfs-
skilyrði þeirra slík að heilsutjón
geti hlotist af og ástæða til þess
að ætla að á þann hátt megi koma
í veg fyrir eða hefta atvinnusjúk-
dóma og atvinnutengda sjúk-
dóma. Útgerðarmaður greiðir
kostnað af læknisskoðun.
Skipverji sem vinnur nætur-
vinnu og á við heilsufarsvandamál
að stríða sem sannanlega verða
rakin til vinnutíma skal þegar
kostur er færður til í dagvinnu-
störf sem henta honum.“
Nýlega tók gildi reglugerð um vinnu- og hvíldartíma skipverja á ís-
lenskum fiskiskipum,en hún er sett í framhaldi af vinnutilskipun Evr-
ópusambandsins. Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambandsins,
segir að í raun sé verið að færa vinnulöggjöf Evrópusambandsins að ís-
lenskum lögum og ekki sé um ræða breytingar á vinnu- og hvíldartíma
hérlendra sjómanna frá því sem áður var.
Vinnutilskipun ESB færð að íslenskum veruleika:
Ný reglugerð um vinnu- og
hvíldartíma sjómanna á fiskiskipum
Formaður Sjómanna-
sambandsins segir
þessa nýju reglugerð
engar breytingar hafa
í för með sér varð-
andi hvíldartíma sjó-
manna á fiskiskipum.