Ægir - 01.03.2004, Page 37
37
S K I PA S K O Ð U N
Sýni skoðunarstofa er
ein af þeim fjórum
fyrirtækjum sem hafa
fengið starfsleyfi til
reksturs faggiltrar
skoðunarstofu á sviði
skoðunar á skipum
og bátum undir 400
brúttótonnum. Þrír
starfsmenn starfa hjá
Sýni á skipaskoðunar-
sviði, Herbert Bjarna-
son, skipatæknifræð-
ingur, Einar J. Hilm-
arsson, vélstjóri, og
Óli Austfjörð, raf-
virkjameistari.
Eftir sem áður mun Sýni skoð-
unarstofa ehf. annast skoðun á að-
stöðu, hreinlæti og innra eftirliti
vinnsluleyfishafa, sem fyrirtækið
hefur haft á sinni könnu allar göt-
ur síðan 1998. Reynir Þrastarson,
framkvæmdastjóri Sýni skoðunar-
stofu, stýrir sjávarútvegsskoðun-
inni.
Sýni skoðunarstofa ehf. er til
húsa að Hjallahrauni 4 í Hafnar-
firði. Sýni er dótturfyrirtæki Að-
alskoðunar hf. sem rekur bifreiða-
skoðun víða um land og sinnir
einnig markaðseftirliti með raf-
föngum og hættulegum vörum.
Mikil samkeppni
„Þetta er allt komið á fullt. Við
erum byrjaðir að skoða um allt
land, m.a. í Reykjavík, Þorláks-
höfn, Grímsey, Hrísey, á Snæfells-
nesi og víðar,“ segir Reynir Þrast-
arson.
Reynir dregur ekki dul á að nú
þegar sé mikil samkeppni þeirra
fjögurra fyrirtækja sem starfa við
skipaskoðunina. Hann hefur af
því nokkrar áhyggjur að fyrirtæk-
in bjóði niður verð fyrir skoðun-
ina, sem aftur geti komið niður á
gæðum hennar. Hann segir það
hlutverk Siglingastofnunar að
fylgjast með starfsemi skoðunar-
stofanna og því mikilvægt fyrir
stofnunina að samræmis sé gætt í
skoðunum við innleiðingu þessa
nýja skoðunarkerfis.
„Þetta er allt komið í fullan
gang og við erum að gera samn-
inga við menn. Mér líst ágætlega
á þær hugmyndir smábátafélag-
anna að bjóða skoðunina út á ein-
stökum svæðum. Þetta er þeirra
leið til þess að ná hagstæðari
kjörum fyrir skoðunina og það
finnst mér ekki óeðlilegt. Mér
sýnist að 500-1000 bátar séu inn-
an vébanda smábátafélaganna,
þannig að á milli 1000 til 1500
bátar eru þar fyrir utan,“ segir
Reynir.
Eins og áður segir eru þrír
menn sem sinna skipaskoðun á
vegum Sýnis skoðunarstofu. Einn
þeirra, Óli Austfjörð, er á Akur-
eyri og mun sinna skipaskoðun
þar og í nágrannabyggðum. Þá
segir Reynir vel koma til greina
að staðsetja skoðunarmann á Snæ-
fellsnesi, en það fari þó eftir nið-
urstöðum útboðs smábátamanna.
„Þetta er allt komið á fullt“