Ægir - 01.03.2004, Blaðsíða 38
38
B Á TA S M Í Ð I
Í apríl verða sjósettir þrír bátar
frá Knörr. Sá minnsti er 2,3 brt.
af gerðinni Knörr 600. Kaupandi
er Jónas Ragnarsson frá Súðavík.
Um er að ræða þriðja bátinn sem
Jónas kaupir frá Knörr á jafn-
mörgum árum. Finnbogi Rafn
telur þetta sýna vel hve kaupend-
ur eru ánægðir með þá báta sem
fyrirtækið framleiðir.
Olgeir Hávarðsson frá Bolung-
arvík er kaupandi að 2,7 brt. báti
af gerðinni Knörr 650. Sá bátur
er byggður á hinum þekkta
Knörr 799. Finnbogi Rafn segir
þennan bát hafa vakið mikla at-
hygli og menn hafi trú á því að
hann eigi eftir að slá í gegn.
Guðmundur Eiríksson frá Höfn
í Hornafirði kaupir 4,1 brt. bát af
gerðinni Perla. Um er að ræða bát
sem upphaflega var framleiddur
af Bátasmiðju Guðgeirs á Akra-
nesi. Gerðar hafa verið umtals-
verðar breytingar á þessum bát-
um, m.a. sett á þá perustefni sem
byggt er á perustefninu sem
Knarrarbátarnir eru þekktir fyrir
og hefur reynst afar vel. Þegar
hefur einum báti, Grími AK-1,
verið breytt á þennan hátt. Stefán
Jónsson, eigandi Gríms, er afar
ánægður með breytinguna og
segir bátinn allt annan og betri.
Þá segir Finnbogi Rafn að fyr-
irtækið eigi á lager plastklára
báta af ýmsum stærðum og gerð-
um. „Þar á meðal er 2,3 brt. bát-
ur af gerðinni Knörr 600, 3,7 brt.
Perlubátur og 4,1 brt. Knarrar-
bátur. Þessir bátar eru langt
komnir og bíða kaupenda.“
Fimmtán tonna bátur
til Ólafsvíkur
„Stærsta verkefnið sem er
framundan er smíði á 14,99 brt.
báti sem smíðaður verður fyrir
Hjörleif Guðmundsson í Ólafs-
vík. Við stefnum að því að sjó-
setja þann bát um miðjan ágúst.
Við höfum fundið fyrir miklum
áhuga á þessum nýja báti og
margar fyrirspurnir hafa borist.
Ætlunin er að smíða tvo báta
samhliða og verður hinn báturinn
tilbúinn til afhendingar á svipuð-
um tíma. Möguleiki verður á að
hafa bátinn yfirbyggðan og með
sjálfvirkri beitningarvél.
Mikill áhugi hefur verið und-
anfarið á ýmiskonar breytingum á
bátum. Við höfum þurft að vísa
allnokkrum slíkum verkefnum frá
þar sem ekki hefur verið svigrúm
til að sinna þeim sem stendur.
Hins vegar hyggjumst við reyna
að koma til móts við útgerðar-
menn varðandi þessar fyrirspurnir
á haustdögum,“ segir Finnbogi
Rafn.
Starfsmenn Bátastöðvarinnar
Knarrar eru nú 13 talsins. Finn-
bogi Rafn segir að eigendur og
starfsmenn fyrirtækisins líti
björtum augum á framtíðina,
enda næg verkefni framundan.
Bátastöðin Knörr á Akranesi:
Þrír bátar sjósettir í apríl
Bátastöðin Knörr á Akranesi var stofnuð árið 1974 af Jóhanni Ársæls-
syni. Stöðin er rótgróin og ein af þekktustu bátasmiðjum landsins. Árið
2002 urðu eigendaskipti á fyrirtækinu. Í forsvari fyrir nýja eigendur eru
Finnbogi Rafn Guðmundsson og Gunnar Leifur Stefánsson. Jafnframt
hefur fyrirtækið aukið framboð sitt og býður nú upp á báta allt frá 2,3
brt. upp í 14,99 brt. Hyggst fyrirtækið sjósetja fyrsta 14,99 brt. bátinn
um miðjan ágúst n.k. Keypt voru mót og bátar á byggingarstigi sem
áður voru í eigu Bátasmiðju Guðgeirs á Akranesi.
Glæsilegur bátur frá Knörr - Gunna ÍS-419.
Nokkrir skrokkar Knarr-
arbáta bíða þess að
vera fullkláraðir.