Ægir - 01.03.2004, Qupperneq 39
39
B Á TA S M Í Ð I
„Það hefur verið óvenju líflegt í
bátasmíðinni að undanförnu og
ekki annað séð en að það verði
áfram. Þeir bátar sem við erum að
smíða eru mjög öflugir og þeir
geta komið í stað stærri og óhag-
kvæmari báta og skipa. Menn
vilja einfaldlega hagræða í rekstri
sínum og þá eru þessir bátar
mjög góður kostur,“ segir Sverrir.
Ótæmandi möguleikar
í plastinu
En aftur að nýjum Happasæl KE,
sem þessa dagana er verið að byrja
að smíða. Um er að ræða bát af
gerðinni Seigur 1500, en svo
stóran bát hafa þeir Seiglumenn
ekki smíðað til þessa. „Smíðin á
þessum báti sýnir að möguleik-
arnir í plastinu eru ótæmandi og
menn eru smám saman að sjá að
viðhaldið á þessum bátum er
miklu minna en á stál- eða tré-
bátunum. Ég hygg að þessi nýi
Happasæll verði stærsti fiskibát-
urinn til þessa sem er smíðaður úr
plasti með vakúm-tækni. Happa-
sæll verður tveggja véla, 1320
hestöfl. Ég hugsa að það sé líka
einstakt að fimmtán metra langur
fiskibátur sé með svo öfluga vél.
Við göngum út frá því að allir
bátarnir hjá okkur gangi þrjátíu
mílur. Þess vegna þurfum við svo
öfluga vél í þennan 1500 bát,“
segir Sverrir, en Happasæll verður
gerður út á net.
Útgerðarmenn gefa plastbát-
unum gaum
Þeir Seiglumenn hafa hannað alla
sína báta. „Þessi nýi 1500 bátur
er nákvæmlega sama hönnun og
við höfum verið að útfæra, hún er
bara stækkun á þeim minni bát-
um sem við höfum smíðað,“ segir
Sverrir. Happasæll mun taka 20
660 lítra ker. Báturinn verður
með 10 metra langan fellikjöl
sem hefur verið að koma mjög vel
út.
Sverrir telur að fleiri muni gefa
því gaum að færa sig úr stærri
stálskipum yfir í slíka báta. Auð-
veldlega megi taka fleiri hundruð
tonn af fiski á slíkum báti, með
mun minni rekstrarkostnaði -
minna viðhaldi og minni elds-
neytiseyðslu. „Hér er ekki um að
ræða slipptöku með tilheyrandi
kostnaði. Þennan bát þarf að
botnmála einu sinni á ári, en lítið
annað.“
Ljóst er að mikið rými þarf fyr-
ir smíði Happasæls, en Sverrir
segir að það komi ekki í veg fyrir
að smærri bátar verði smíðaðir
jafnhliða. Seigla hafi tryggt sér
400 fermetra aðliggjandi viðbót-
arrými á meðan verið er að smíða
Happasæl.
Margra mánaða jól
Sverrir segir það vissulega rétt að
oft hafi ekki blásið byrlega í smá-
bátasmíðinni á Íslandi. Nú sé
hins vegar allt annað og betra
uppi á teningnum. Stundum er
það orðað svo að ekki séu alltaf
jólin, en Sverrir hefur hins vegar
orð á því að nú séu jólin og ekki
sé annað sýnt en að þau muni í
það minnsta standa án uppihalds
fram á mitt næsta ár. Áætlanir
gera ráð fyrir að ljúka við smíðina
á Happasæl fyrir næsta fiskveiði-
ár, sem hefst 1. september, en síð-
an taka önnur verkefni við.
„Það er nóg að gera - við getum ekki kvartað. Núna erum við að smíða
einn 1080 bát fyrir Guðbjörn Magnússon, en þetta er þriðji báturinn
sem hann kaupir af okkur. Einnig erum við að smíða annan 1080 bát
fyrir útgerðarmann í Færeyjum. Þessir bátar eru rétt um 12 tonn að
stærð. Þriðji báturinn sem við erum að smíða er af gerðinni 1160, sem
er 15 tonn, en hann fer á Snæfellsnes. Fjórði báturinn er síðan nýr
Happasæll KE, sem við erum að hefja smíði á. Þessi bátur er 32ja tonna
plastbátur og kemur í stað 357 brúttótonna stálskips með sama nafni
sem var smíðað árið 2001 í Kína,“ segir Sverrir Bergsson hjá Seiglu ehf.
Seigla smíðar nýjan Happasæl KE
Teikning af hinum nýja Happasæl KE,
sem nú er verið að hefja smíði á. Um er
að ræða stærsta bát sem Seigla hefur
smíðað - af gerðinni Seigur 1500.