Ægir - 01.03.2004, Síða 40
40
B Á TA S M Í Ð I
„Það hefur verið mikið að gera í
bátasmíðinni að undanförnu. Í
vetur hef ég aðallega smíðað tvær
öflugar gerðir Sómabáta, Sóma
865, með 480 hestafla vél, sem
hafa reynst mjög öflugir bátar.
Það eru bátar sem plana með
nokkurn veginn það sem þeir
bera af fiski og eru frá 4,6 til ca
5,0 brúttótonn. Það nýjasta hjá
okkur eru hins vegar bátar sem
við köllum Sómi 695, sem eru
sérsniðnir að dagakerfinu. Þetta
eru bátar sem geta verið frá 2,35
til 4,3 brúttótonn, bátur sem er
3,7 tonn er með mestu lengd 8
metrar. Nýverið sjósettum við bát
af þessari nýju tegund, Blæ NK,
fyrir Sigurstein Sigurðsson, út-
gerðarmann í Neskaupstað. Þessi
bátur er búinn Volvo Penta D6
vél og gengur rúmar þrjátíu míl-
ur,“ segir Óskar Guðmundsson,
framkvæmdastjóri og eigandi
Bátasmiðju Guðmundar í Hafnar-
firði.
Áherslan á minni bátana
„Við höfum einbeitt okkur að
þessum minni bátum, krókaafla-
marksbátum og dagabátum og sú
áhersla okkar hefur gefið góða
raun. Dagabátarnir eru frá 2,3
brúttótonnum og upp í 6 tonn.
Það hefur verið mikil spurn eftir
svona bátum og menn hafa sýnt
þessum nýja 695 báti mikinn
áhuga. Mesta lengd á 695-bátn-
um er átta metrar ef hann er 3,7
brúttótonn. En hann getur tækni-
lega orðið eitthvað lengri. Þessir
bátar eru mjög liprir og hag-
kvæmir í rekstri og það hefur
ekki svo lítið að segja,“ segir
Óskar.
Blær NK er 3 tonn og er með
lest fyrir 7 kör 310 L. Í smíðum
er einnig einn 3,8 tonna bátur,
sem er 8 metra langur og með v-
gír, öxli og D6 vélinni, sá bátur
er með 11 kara lest.
„Einnig fórum við í að gera
innréttingar og stýrishúsið ein-
faldara og ódýrara í framleiðslu.
Sómi 695 er aðeins boðinn málað-
ur að innan, loft er einangrað og
plastað og málað yfir til að ekki
gráti úr toppnum, einnig eru all-
ar innréttingar plastaðar og hurð-
ir eru úr plasti. Þessi bátur er
hugsaður sem dagróðrabátur og
ekki er gert ráð fyrir því að menn
búi í honum, en það er samt pláss
fyrir tvo í koju. Við prófun á
fyrsta bátnum, Blæ, sem er með
Volvo Penta D6 310 hp og
hældrifi, fór hann í rúmar 30 sjó-
mílur og við prófuðum að setja
steypuklumpa í lestina og ákváð-
um að í fyrstu lotu væri nóg að
setja 1,5 tonn í þennan 3 tonna
bát. En viti menn, hann hentist í
30 mílur með hann og var snögg-
ur að.“
Óskar segir í burðarliðnum að
bjóða þennan 695 bát sem sport-
bát undir 6 metrum þannig að
hann verði ekki skráningarskyld-
ur og heitir þá Sómi 595. Hægt
verður að fá þennan bát með
stærra húsi en samt með dekk-
plássi þannig að tveir geti athafn-
að sig með stöng eða byssur.
Fimm bátar í smíðum núna.
Mikil reynsla er að baki báta-
smíðinni hjá Bátasmiðju Guð-
mundar í Hafnarfirði, þar hafa
verið smíðaðir bátar í aldarfjórð-
ung undir nafninu Sómi. Í það
heila hafa verið sjósettir á fimmta
hundrað Sómabátar. „Það er auð-
vitað alltaf einhver þróun í báta-
smíðinni, en við byggjum enn á
sama trausta grunninum,“ segir
Óskar, en þessa dagana eru fimm
bátar í smíðum hjá stöðinni sem
ætlunin er að afhenda núna á vor-
dögum. „Við höfum eingöngu
verið að smíða fyrir innanlands-
markað. Það eru nokkuð mörg ár
síðan við smíðuðum báta fyrir
Grænlendinga, en við höfum ekki
farið út í það aftur. Innanlands-
markaðurinn dugar okkur alveg
eins og er. Menn töldu reyndar
fyrir nokkrum árum að heima-
markaðurinn hlyti að fara að
mettast, en það hefur ekki enn
gerst. Það hefur að sjálfsögðu
mikið að segja að vera alltaf að
þróa eitthvað nýtt og bæta það
sem fyrir er. Í staðinn fyrir hæg-
genga trillur geta menn nú fengið
nýja og afar öfluga hraðfiskibáta
sem eru hagkvæmir í rekstri.
Menn vita að Sóminn hefur kom-
ið afar vel út í sambandi við
eyðslu, viðhald og fleira og það er
besta auglýsingin.“
Ætla að ljúka við
30 tonna bátinn
Eins og áður segir hefur Báta-
smiðja Guðmunar fyrst og fremst
einbeitt sér að smíði minni báta.
Nýi Sómi 695 vekur athygli
Nýverið sjósetti Báta-
smiðja Guðmundar þenn-
an bát, Blæ NK, fyrir Sig-
urstein Sigurðsson, út-
gerðarmann í Neskaup-
stað. Blær er búinn Volvo
Penta D6 vél og gengur
rúmar þrjátíu mílur.