Ægir - 01.06.2005, Side 29
29
G R Í M S E Y
þorskafla. Þvert á móti. Vertíðin í
vetur var mjög góð og ég verð að
segja að í ljósi hennar átti ég alls
ekki von á skerðingu. En maður
skyldi ætla að vísindamennirnir
hafi meira vit á þessu en við
trillukarlarnir. Hitt er svo annað
mál að mér finnst að þeir mættu
hafa samráð við okkur sem erum
dags daglega í nálægð við fiski-
miðin og höfum samanburð frá
ári til árs. En sjálfsagt segja vís-
indamennirnir að þeir geti fengið
allar þessar upplýsingar úr afla-
dagbókum,“ segir Gylfi, en hann
man tímana tvenna í fiskifræðun-
um við Grímsey - hefur enda ver-
ið á sjó í rétt tæp fjörutíu ár.
Gott mannlíf í Grímsey
Gylfi lætur vel af mannlífinu í
Grímsey. Hann segir Grímsey-
inga hafa verið duglega að styrkja
kvótastöðuna og því sé nóg að
gera í eynni. Athygli vekur að
Grímseyingum hefur haldist vel á
unga fólkinu og því hefur ekki
verið að fækka í eynni. Þvert á
móti hefur heldur verið að fjölga
og ekki sakar að nú mun ein af
ungu konunum í Grímsey eiga
von á tvíburum. Gylfi segir að
börnin í Grímsey alist upp við
það að vinna. „Þau eru ekki alin
upp á stofnunum, heldur taka
þau strax virkan þátt í atvinnu-
og mannlífinu í eynni. „Krakkar
eru í vinnu sem tengist sjónum -
línuuppstokkun, að salta fisk og
fleira. Og strákar eru oft að fara á
sjó um og upp úr fermingu,“ seg-
ir Gylfi Gunnarsson.
Gylfi Gunnarsson segir mannlíf gott í Grímsey og samfélagið búi við þá gæfu að unga
fólkið vilji búa í eynni.
Ný og stærri
Hafborg gerð
út frá Grímsey
Þeir bræður Guðlaugur Óli og Sig-
urður Þorlákssynir hafa fest kaup á
Stapavík AK-132 og munu gera hana
út frá Grímsey undir nafninu Haf-
borg EA-152. Stapavíkin kemur í
stað gömlu Hafborgar, sem verður
seld.
Nýja Hafborgin verður gerð út á
net og snurvoð eins og sú gamla.
Gamla Hafborgin er tæp 10
brúttórúmlestir, en nýja Hafborgin
er 48 brúttórúmlestir. Hún er 17
metra löng og 4,8 metra breið.
Horft yfir höfnina í Grímsey og fjær er hluti byggðarinnar í eynni.
Myndir: Hulda Signý Gylfadóttir.
aegirjuni2005 1.7.2005 18:04 Page 29