Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2005, Blaðsíða 36

Ægir - 01.06.2005, Blaðsíða 36
36 N Ý S K Ö P U N A RT O G A R A R N I R Upplýsingar um þennan hluta í útgerðarsögu landsmanna hafa verið af fremur skornum skammti, eða öllu heldur hefur lítið verið gert til að safna þeim saman, en tveir áhugamenn á Húsavík, þeir Kjartan Traustason og Hafliði Óskarsson, hafa leitast við að ráða bót á því og hafa safn- að saman myndum af öllum tog- urunum og ýmsum fróðleiksmol- um um útgerð þeirra. Við saman- tekt þessarar greinar hefur Ægir fengið ýmsa ómetanlega fróð- leiksmola sem Hafliði Óskarsson hefur látið blaðinu í té. Ljós- myndirnar hefur blaðið fengið frá þeim félögum Kjartani og Haf- liða. Þeim eru hér færðar sérstak- ar þakkir fyrir aðstoðina og greið- viknina. Á tímum Nýsköpunarstjórnar- innar og Stefaníu Nýsköpunarstjórnin, sem svo er kölluð, ríkisstjórn undir forsæti Ólafs Thors, sat að völdum frá 21. október 1944 til 4. febrúar 1947. Þessi ríkisstjórn samdi við Breta um smíði þrjátíu og tveggja togara, 30 gufukyntra og 2 olíukyntra, sem voru síðan jafn- an kallaðir „nýsköpunartogarar“. Þann 4. febrúar 1947 tók við ríkisstjórn undir forsæti Stefáns Jóhanns Stefánssonar og var jafn- an kölluð „Stefanía“. Þessi ríkis- stjórn bætti um betur og samdi um smíði tíu togara til viðbótar þeim 32, sem þegar hafði verið samið um smíði á, 8 gufukyntra og 2 olíukyntra, þeir togarar voru almennt kallaðir „Stefaníuskip“. Í það heila voru þó allir togararnir 42 almennt kallaðir nýsköpunar- togarar. Auk togaranna 42 sem ríkissjóður Íslands samdi um smíði á, var smíðað eitt skip til viðbótar í Englandi, fyrir Guð- mund Jörundsson, útgerðarmann, án afskipta stjórnvalda. Það skip var smíðað í Lowestoft og hlaut nafnið Jörundur EA og kom til landsins árið 1949 (sökk löngu síðar). Aukinheldur voru keyptir þrír svokallaðir „sáputogarar“, notuð skip, frá Englandi. Tveir þessara togara fóru til Patreks- fjarðar og fengu nöfnin Gylfi og Vörður. Vörður fórst síðar og Gylfi var seldur úr landi fljótlega. Patreksfirðingar fengu síðar tvö „Stefaníuskip“ á árunum 1951- 1952. Þriðja skipið fór til Reykjavíkur og hlaut nafnið Kári, en var seldur eftir u.þ.b. þrjú ár. Alls komu því 46 togarar til landsins á svokölluðum nýsköp- unarárum. Smíðaðir í Englandi og Skotlandi Þeir 32 togarar sem samið var um í tíð nýsköpunarstjórnarinnar voru annars vegar smíðaðir í þremur skipasmíðastöðvum við Humberfljót í Englandi - tvö díselskip í Goole Shipbuilding & Co, tíu gufuskip í Cook Welton og Gemmel í Beverley og átta gufuskip Cochrane & Sons Ltd. í Selby - og hins vegar í tveimur stöðvum í Aberdeen í Skotlandi - fimm gufuskip John Lewis & Sons og sjö gufuskip í Alexander Hall. Af tíu Stefaníuskipum voru tvö díselskip smíðuð í Goole Ship- building & Co í Englandi, sjö gufuskip í John Lewis & Sons í Aberdeen í Skotlandi og eitt gufuskip í Alexander Hall í Aber- deen. Nýsköpunartogararnir komu til landsins sem hér segir: Árið 1947 - átján skip: B/v Ak- urey RE-95 (Rvík), B/v Askur RE-33 (Rvík), B/v Egill Skalla- grímsson RE-165 (Rvík), B/v Geir RE-241 (Rvík), B/v Helga- fell RE-280 (Rvík), B/v Hvalfell RE-282 (Rvík), B/v Ingólfur Arnarson RE-201 (Rvík), B/v Bjarni Ólafsson AK-67 (Akra- nes), B/v Elliði SI-1 (Siglufj), B/v Kaldbakur EA-1 (Akureyri), B/v Ísólfur NS-14 (Seyðisfj), B/v Egill Rauði NK-104 (Neskaupst), B/v Goðanes NK-105 (Neskaupst) B/v Elliðaey VE-10 (Vestmeyjar), B/v Bjarni Riddari GK-1 (Hafn- arfj), B/v Júlí GK-21 (Hafnarfj), B/v Neptúnus GK-361 (Hafnarfj) og B/v Surprise GK-4 (Hafnarfj). Árið 1948 - tíu skip: B/v Fylk- ir RE-161 (Rvík), B/v Jón Forseti RE-108 (Rvík), B/v Karlsefni RE-24 (Rvík), B/v Marz RE-261 (Rvík), B/v Skúli Magnússon RE- 202 (Rvík), B/v Ísborg ÍS-250 (Ísafj), B/v Bjarnarey VE-11 (Vestmeyjar), B/v Keflvíkingur GK-197 (Keflavík), B/v Garðar Þorsteinsson GK-3 (Hafnarfj) og B/v Röðull GK-518 (Hafnarfj). Árið 1949 - fjögur skip: B/v Merkileg saga ný- sköpunartogaranna Á fimmta áratug síðustu aldar, í kjölfar síðari heimsstyrjaldar, var ákveðið að verja stórum hluta þeirra stríðsfjármuna sem Íslendingum áskotnaðist til kaupa á togurum sem gætu stuðlað að uppbyggingu öfl- ugs atvinnulífs í sjávarplássum um land allt. Fest voru kaup á fjölda togara í Bretlandi, sem almennt eru kenndir við nýsköpun og bera því nafnið „nýsköpunartogararnir“. Togararnir komu til landsins á árunum 1947-1952 og áttu eftir að skipta sköpum í atvinnuuppbyggingu víða um land. aegirjuni2005 1.7.2005 18:04 Page 36

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.