Ægir - 01.11.2007, Síða 50
50
nýta það vel til manneld-
isvinnslu,“ segir Ægir Páll.
Eins og aðrar útflutnings-
greinar hefur sjávarútvegurinn
verið í ólgusjó sterkrar krónu.
Á móti hefur komið að í er-
lendum myntum hefur hátt
verð fengist fyrir íslenskar
sjávarafurðir og segir Ægir
Páll að það hafi hreinlega
bjargað útveginum á síðustu
árum. „Í kjölfar þess að við
keyptum Hraðfrystistöð Þórs-
hafnar settum við í gang kúf-
fiskvinnsluna á Þórshöfn, sem
hafði ekki verið í gangi í 2 ár.
Við vorum með þessa vinnslu
í gangi frá sl. vori fram í októ-
ber. Vegna þess að afurðirn-
ar hafa eingöngu verið seldar
til Bandaríkjanna, afurðarverð
hefur ekki hækkað mikið á
undanförnum árum og við-
skiptin í dollurum, skilaði
þessi vinnsla ekki neinu, en
við gerum þó ráð fyrir því að
hún fari aftur í gang á nýju
ári ef við náum samningum
um sölu á kúffiskafurðunum.
Ekki má gleyma því að
olíu verðshækkunin hefur gert
okkur heldur betur lífið leitt.
Þetta eru rosalegar hækkanir
og fyrir okkar fyrirtæki þýðir
þetta nokkur hundruð millj-
óna króna kostnaðarauka.“
Nokkur spurningamerki á lofti
Ægir Páll segir erfitt að spá
fyrir um markaðaðstæður á
komandi ári fyrir íslenskar
sjávarafurðir, en hins vegar
séu blikur á lofti um að sum-
ar fiskafurðir séu að verða of
dýrar í samanburði við önnur
matvæli. „Sá vöxtur sem hefur
verið í ferska fiskinum í Evr-
ópu held ég að hafi náð há-
marki. Hins vegar er eft-
irspurnin ennþá jöfn og mikil.
En í ljósi þess að svo virðist
sem almennt sé að þrengja
Í S F É L A G I Ð
Janúar
Guðmundur VE 29 kom til Eyja eftir tíu
mánaða endurbætur í Póllandi þar sem
skipið var lengt um 12,5 metra og allur
vinnslu- og dælubúnaður endurnýj-
aður.
Febrúar
Ísfélag Vestmannaeyja keypti allt
hlutafé í Þórshöfn fjárfestingu ehf. sem
átti öll hlutabréf í Hraðfrystistöð Þórs-
hafnar hf. Seljendur hlutafjárins í Þórs-
höfn fjárfestingu ehf. voru FSP hf., sem
er fjárfestingarfélag í eigu sparisjóð-
anna, Fræ ehf., sem er eignarhaldsfélag
í eigu Langanesbyggðar, og Þórskaup
ehf., sem er í meirihlutaeigu Fisk Sea-
food hf. á Sauðárkróki.
Ákvörðun tekin um að loka Krossanes-
verksmiðjunni við Eyjafjörð í kjölfarið á
kaupum Ísfélagsins á Hraðfrystistöð
Þórshafnar. Hluti af tækjabúnaði verk-
smiðjunnar var nýttur til þess að bæta
bræðslur Ísfélagsins í Eyjum og á Þórs-
höfn. Húsakynni Krossanesverksmiðj-
unnar voru seld til ítalska fyrirtækisins
Becromal, sem hyggst koma á fót ál-
þynnuverksmiðju í Krossanesi.
Heimaey VE 1 kom til Vestmannaeyja
úr sinni síðustu veiðiferð fyrir Ísfélag
Vestmannaeyja 1. febrúar, en áður
hafði verið tekin ákvörðun um að
leggja skipinu eftir að hafa verið gert út
frá Eyjum í hartnær þrjátíu ár.
Apríl
Ísfélagið festi kaup á Þórunni Sveins-
dóttur VE af Ós ehf. í Eyjum. Ísfélagið
fékk skipið, sem hlaut nafnið Suðurey
VE 12, afhent í september. Suðurey
eldri fékk nafnið Bjarnarey VE 25.
Landvinnslufólk Ísfélagsins brá sér út
fyrir landssteinana og hélt árshátíð sína
í Tallinn í Eistlandi.
Júlí
Ísfélagið keypti uppsjávartogskipið M/
V Delta. Skipið, sem var smíðað árið
1987 í Flekkefjord í Noregi, er 65,65
metrar að lengd en 12,60 metra breitt.
Skipið, sem fékk nafnið Álsey VE, kom
til Eyja 1. september.
Samningur um sölu á uppsjávartogskip-
inu Álsey VE. Eftir að ný Álsey bættist
við í flota Ísfélagsins fékk gamla skipið
nafnið Álsey II. Hún var seld úr landi,
til verkefna við strendur Afríku.
Ágúst
Samningur gerður um sölu uppsjáv-
arskipsins Antares og var skipið afhent
nýjum eigendum í september, en það
hefur fengið nýtt hlutverk við veiðar
undan ströndum Afríku.
Október
Lokið við endurbætur á fiskimjölsverk-
smiðju Ísfélagsins í Eyjum. Nothæfur
búnaður úr Krossanesverksmiðjunni
var fluttur til Eyja og hann nýttur til
endurbóta á verksmiðjunni þar. Meðal
annars var skipt út sjóðara og pressu
og gufuþurrkun bætt við. Vonir eru
bundnar við að þetta auki afköst verk-
smiðjunnar og nýtingu. Einnig voru
settir upp nýir mjöltankar – svokallaðir
dagtankar.
Nóvember
Þann 1. nóvember var undirritaður
smíðasamningur milli Ísfélags Vest-
mannaeyja og skipasmíðastöðvarinnar
Asmar í Talcahuano í Chile um smíði á
nýju og fullkomu uppsjávarskipi fyrir
Ísfélagið sem verður afhent um mitt ár
2010. Skipið er hannað og teiknað af
Rolls Royce í Noregi. Ísfélag Vest-
mannaeyja hf. mun jafnframt eiga
smíðarétt á öðru samskonar skipi hjá
Asmar.
Bygging nýs frystiklefa fyrir uppsjáv-
arafurðir hjá Hraðfrystistöð Þórshafnar.
Klefinn tekur 3.500 tonn af afurðum.
Stjórnendur Ísfélagsins og Fjárfestinga-
félagið Kristinn ehf. í Vestmannaeyjum
undirrituðu samning um kauprétt á öll-
um hlutum Stillu og fleiri félaga í eigu
bræðranna Guðmundar og Hjálmars
Kristjánssona í Vinnslustöðinni í Vest-
mannaeyjum. Um er að ræða tæplega
þriðjungshlut í Vinnslustöðinni. Fyrir
20. desember sl. átti að vera búið að
taka endanlega afstöðu til kaupa á um-
ræddum hlutabréfum í VSV.
Hvað gerðist hjá Ísfélaginu á árinu 2007?
Guðbjörg Matthíasdóttir og Hernan Fuentes undirrita samning um smíði nýs skips
fyrir Ísfélagið í Asmar skipasmíðastöðinni í Talcahuano í Chile.