Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Side 7

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Side 7
TIMARIT MÁLS OG MENNINGAR RITSTJÓRI: KRISTINN E. ANDRÉSSON 1940 • JANÚAR-APRÍL • I. HEFTI 1*fÍMARlT MÁLS OG MENNINGAR, sem nú liefnr I göngu sína, er í rauninni nýtt málgagn með breytt- um og víðtækari tilgangi en liið etdra með sama nafni. Kemur það í stað litla tímaritsins og Rauðra penna í senn og mun flytja sögur, kvæði, ritdóma og greinar um livers konar menningar- og þjóðfélagsmál. Tímaritinu er ætlað að koma út þrisvar á ári, alls 15 arkir á stærð. Um stefnu þessa nýja tímarits er óþarft að eyða mörgum orðum. Hún verður liin sama og Mál og menn- ing hefur markað mcð útgáfustarfsemi sinni og útgáfu- fyrirætlunum á undanförnum árum. Bækur eins og Vatnajökull, Móðirin, Austanvindar og vestan, Andvök- ur, Húsakostur og híbýlaprýði, verk Jóhanns Sigur- jónssonar og Arfur íslendinga tala slajru máli um menningarviðhorf félagsins, sem gefur þær lit og kem- ur þeim inn á fjórða hvert lieimili á íslandi. Tíma- ritið mun leitast við að halda þessari menningarstefnu félagsins hátt á lofti. Gerðar munu miklar kröfur til þeirra, sem í það rita, um málfar, stíl og efnisvál, og ekki síður um heiðarlegan og vandaðan málaflutning. Ritið er ekki, fremur en bókmenntafélagið sjálft, gert út af neinum stjórnmálaflokki og hefur ekki neina flokkspólitíska hagsmuni. Það mun í hvívetna túlka málstað frjálslyndis og réttlætis, og ekki hlífast við að skýra frá því, sem sannast er vitað í hverju máli, hvort

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.