Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Page 13

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Page 13
Jónas Þorbergsson: Einar Benediktsson skáld. i. Þann 12. janúar síðastl. gerðist sá atburður í Herdís- arvik, að stórskáldið Einar Benediktsson andaðist. Eft- ir því sem næst varð komizt af samfjdgdarmönnum hans og þeim, sem höfðu af honum kynni hin siðustu ár, var lífið honum að mestu liorfið, áður en andlátið sjálft har að höridum. En fyrrnefndan dag voru líkams- fjötrarnir með öllu rofnir. Ivvndill þessa óviðjafnan- lega anda meðal Islendinga, sem svo liátt var brugðið og um skeið hrann með þvílíkri birtu, slokknaði að fullu og öllu. Eftir urðu likamsleifarnar. Og íslend- ingar, eigi síður en annarra þjóða menn, lcunna að meta líkamsleifar stórmenna sinna og votta þeim sér- stakt dálæti sitt. Að þessu sinni varð og sú raunin á. Útför Einars var kostuð af ríkinu. Þjóðin kom sér upp nýjum grafreit á sínum helgasta stað og vigði hann með liki Einars Benediktssonar. Svo mun til ætlazt, að íslendingar í framtiðinni velji að Þingvöllum legstað þeim mönnum, er þeir óska að heiðra dauða á sérstak- an liátt. Það mun verða efalaust kappsmunamál þeim mönnum, sem i lifenda lífi telja sig réttkjörna til yfir- hurðamats af hálfu samlanda sinna, að hljóta slika sæmd, hversu sem til kann að skipast um valið af hálfu þeirra manna, sem á hverjum tima eiga fyrir að ráða þessari síðustu vegtyllu. II. Enginn kostur er þess, enda þarfleysa, að rekja hér til hlítar æfiatriði Einars Benediktssonar. Við endur-

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.