Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Page 24

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Page 24
18 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR sem slíkir sjálfsdýrkarar í valdaaðstöðu krefjast af lýðn- um í andlegu tilliti er aS hann sjái i öllum þeirra gerðum einhverja æðri ráðsályktun, viðurkenni „köllun“ þeirra til að skipta sér af öllu þvi sem þeim kemur ekkert við, dá- ist að óskeikulleik dóma þeirra um allt það sem þeir liafa ekkert vit á, telji það ekki nema rétt, sjálfsagt og eðlilegt að þeir séu hvekkur í hvers manns koppi. Þeir eru sú guðlega forsjón sem hfir og nærist af trú áhangenda sem andstæðinga á þeirra „viturlega plön“ og allt að þvi yfir- náttúrlegu stjórnkænsku (þótt þeir hafi aldrei liaft neitt annað „plan“ í höfðinu en troða sjálfum sér inn hvar sem þeir sáu opna smugu, eða naga sig inn milli þils og veggj- ar í hvers manns húsi, ef engin var smugan). Þeir semja og láta semja um sig katekisma, þar sem þessi „viturlegu plön“ þeirra eru álitin miðþyngdarstaður allrar framvindu, unz nógu víðtæk boðun þessara „fræða“ liefur skapað þá lenzku í landi, að menn séu reiðubúnir að fótumtroða sina eigin vitglóru, sannfæringu, samvizku og mannleg- an virðugleik (ef nokkur var) við livern andblæ frá sæti delirantsins, eða frá þvi ömurlega samsafni af ragmenn- um, fíflum og druslum, sem þessari manngerð tekst auð- veldlega að gera að málaliði sínu. Engin furða þótt návist slíkrar manngerðar í þjóðfé- laginu verki sem truflun á öllu heilhrigðu lífi; þótt þeir séu í viðleitni sinni fjötrandi og þvingandi, er afleiðing verka þeirra splundrun og upplausn. Jafn eðlilegt er það, áð menningin, sem er kyrrlátt, milt, félagslegt, heilbrigt og göfgandi afl, það afl sem lyftir manninum úr ríki þursa og sltynleysingja, skuh vera sá höfuðóvinur sem einn getur klippt úr þeim vígtennurnar og slæft vopn þeirra. í landi þar sem menningin héfur fengið að sitja í fyrirrúmi verða slikir menn af sjálfu sér að hlægilegum utanveltubesefum, en komast aldrei upp fyrir moðreyk með neitt af sínum „plönum“. Þar sem menning ríkir með þjóð vekur áróður slíkra manna um „köllun“ sína aðeins vorkunnarbros. Engum er það hinsvegar Ijósara

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.