Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Side 27
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
21
í sem stytztu máli: kostgæfið að lialda þjóðinni í skarninu
undir skóhæl sínum. En það virðast vera rök jarðneskrar
tilveru, að mannkynið leitar fram á við til „aleflingar
andans“, og gegn þessari eðlisbundnu þróun mannfélags og
einstaklinga virðast fjötrar og andóf mannhaturs og aft-
urhalds vera tiltölulega máttvana, jafnvel þegar þau eru
sterkust. Það virðist eftir sögunni að dæma vera næstum
sama livaða kúgunarvopni mannkindin er beitt, það er
eins og einhver almáttugur goðkraftur hafi sagt við hana
i upphafi: „Þrátt fyrir allt þú skalt, þú skalt samt fram“.
Gegn þessu lífslögmáli verða hótanir, ofsóknir og ógnar-
æði jafnan einkennilega máttvana þegar til lengdar lætur,
og þótt afturlialdsöfl og myrkra reyni að treysta aðstöðu
sina bæði með hjálp valdagírugra deliranta og annara
dragbíta þróunarinnar, þá er eins og það hafi enga stoð.
Allt þeirra brambolt fellur um sjálft sig: gifta mannsms
er æfinlega rneiri en fjandskapur hatara og hótara. Áður
en varir hefur lieilbrigt fólk hrist af sér klafann á sama
hátt og því batnar eftir hvern anrian faraldur. Það er
þetta sem er venjulega kallað hylting. Bylting er ein af
refsingum náttúrunnar: slíka refsingu kalla þeir valda-
menn yfir sig, sem tekizt hefur að gera þjóðlifið að þræla-
markaði, bylting er hin beina afleiðing af verkum þeirra
sem ofsækja frjálsa hugsun og skapandi listir, þeirra sem
beita ógnaræði, þeirra sem fara með hótanir og gera hin-
ar æðstu stofnanir ríkisins að útbýtingarstassjón fyrir
mútur. Bylting í einhverju formi er hinn eini jákvæði ár-
angur af lífsstarfi þrælakaupmanna. Það hatur til allrar
ofstjórnar, sem samkvæmt sálrænum lögmálum hlýtur
að skapast lijá almenningi, er i réttu hlutfalli við hug
valdaklíkunnar til almennings, hér ræður hið einfalda
lögmál orsaka og afleiðinga: eins og þér sáið svo munuð
þér og uppskera.
En þar í löndum sem almenningur stendur á háu upp-
lýsingarstigi og hefur nógu ræktaða dómgreind til að
skapa sér skoðun, ekki aðeins á fyrirbrigðum náttúrunn-