Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Qupperneq 28
22
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
ar, heldur einnig fyrirbrigðum stjórnarfarsins, í þeim
löndum þar sem segja mætti að þjóðfélagslikaminn liafi
náttúrleg viðhrögð gegn öllum ytri áverkum, þar er blátt
áfram ekki til jarðvegur fyrir þá hálfblindu og ofstopa-
fullu sjálfsdýrkara, sem afturlialdið beitir á oddinn þegar
annað brestur. Og þótt þeir noti sér allar veilur sem finn-
ast kunna á þjóðskipulaginu, takist að koma í veg fyrir
að kostir borgaralegs lýðræðis fái notið sín, en þræði alla
galla og ávantanir þingræðisskipulagsins til að koma fram
klækjum sínum.og takist þannig að kvelja fram alls konar
afkáraleg lagafyrirmæli í von um að geta kúgað fólk og
afmenntað, þá verða lög sem vaxa upp úr slíkum jarð-
vegi aldrei annað en dauður bókstafur. Það tjóar nú einu
sinni ekki að setja lög, ef þau eiga sér engan grundvöll i
siðferðisvitund þjóðarinnar og menningarástandi. Slík lög
verða úti í almenningsálitinu, frjósa í hel fyrir kaldhæðni
ótaldra þúsunda af fólki, sem er að vísu algengt fólk, en
stendur aðeins á miklu hærra menningarstigi og hefur
þroskaðri siðferðisvitund en löggjafarnir. Efhér á íslandi
vrði liert á lögum gegn almennri upplýsingu, mundi eng-
inn fara eftir slikum lögum. Á siðasta Alþingi var gerð
sérkennileg tilraun í þessa átt: lög sem banna íslendingum
að læra útlend tungumál voru sett sem spegilmynd lítils
meirihluta þeirrar fornfrægu stofnunar sem afturhalds-
öflin í landinu þrá nú mest að gera að opinberu þræla-
torgi. En Islendingar munu læra útlend mál eftir sem áð-
ur, þrátt fyrir slík lög. Á sömu leið mun einnig skipast
um lög þau um nýtizku sveitarflutninga, sem sett voru á
siðasta Alþingi; í þeim lögum er heimilað að flytja íslend-
inga eins og þrælkunarliússfanga aftur á bak og áfram
um landið eftir geðþótta þeirra sem vilja í nafni yfirvald-
anna taka að sér þrælahaldarahlutverkið; einn af erind-
rekum hinna myrku þjóðfélagsafla lét svo um mælt í
Ríkisútvarpinu, að með þessu mundi vonandi verða hægt
að flytja tólf þúsund Reylcvíkinga sveitarflutning á næst-
unni. Eitt er víst: hugmyndin um allsherjar þrælahald í