Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Side 47
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
41
konungar af Capetingaætt sáu brátt, að þeir áttu mikil-
\ægan pólitískan bandamann og góðan skattþegn, þar
scm var hin iðjusama en litilsvirta borgarastétt. Frá því
á 12. öld áttu Frakklandkonungar í látlausri baráttu við
iiinn mikilláta og volduga lénsaðal. Baráttu þessari lauk
svo, að hvert stórlénið á fætur öðru féll undir konung, en
háaðallinn var sviptur pólitíslcu valdi. Á 16. öld er kon-
ungsvaldið búið að sameina landið undir sterkri stjórn
og það hefur víðtæk umráð yfir embættaveitingum og
tekjum hinnar auðugu frönsku kirkju.
I baráttu sinni við sérréttindastéttirnar leitaði konungs-
valdið æ oftar liðveizluhjáhinni uppvaxandiborgarastétt.
Til hennar sótti það embættismenn þá, er konungur setti
til stjórngæzlu i stað hins gamla lénsaðals, er nú var svipt-
ur opinberum störfum. Þessi borgaralega embættismanna-
stétt var laus við pólitíska og félagslega hleypidóma að-
alsins, en trú konungum sinum, er höfðu sett liana til met-
orða. Á öndverðri 14. öld eru fulltrúar borgaranna kvadd-
ir á allsherjar-stéttaþing, og er það upphafið að íhlutun
stéttanna um fjárveitingar til ríkisins. Þessi samvinna
uppvaxandi borgarastéttar og stríðandi konungsvalds var
um langan aldur sögulegur arfur, er nálega allir Frakk-
landskonungar juku og ávöxtuðu.
En eftir þvi sem konungsvaldinu óx fiskur um hrygg,
tók það og að ganga á pólitískt sjálfsforræði borgara-
stéttarinnar. Borgirnar misstu sjálfstjórn sína og komust
undir stjórngæzlu konunglegra embættismanna. Þetta
vakti um skeið mikla andúð á hinu ríka konungsvaldi,
og á síðara hluta 16. aldar geisuðu borgarastvrjaldir milli
hins kaþólska konungsvalds og kirkjunnar annarsvegar
og borgaranna og nokkurs hluta háaðalsins hinsvegar.
Hin pólitíska og trúarlega uppreisn evrópskrar borgara-
stéttar á 16. og 17. öld, Calvínisminn, vann allmikið fylgi
meðal franskra borgara og háaðals, sem risu upp gegn
ofriki konungsvaldsins. En eftir 30 ára innanlandsstyrj-
aldir voru allar stéttir hins franska þjóðfélags svo að þrot-