Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Qupperneq 53
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
47
bols og höfuðs á þjóðfélagi einveldisins og sérréttind-
anna, hafði hin borgaralega gagnrýni höggvið i sund-
ur hlífar þess og deyft eggjarnar í öllum vopnum
þess.
Hin mikla andlega hreyfing 18. aldar, upplýsingar-
stefnan, skynsemistefnan, eða hvað menn nú vilja kalla
hana, á rætur sínar að rekja til liinnar ensku lieim-
speki, er vaxið hafði upp undir ríkum áhrifum Púrí-
tanahjdtingar Englands um miðja 17. öld. Enski heim-
spekingurinn John Loeke hefur í lok 17. aldar orðað
grundvallaratriði borgaralegra þjóðfélagsvísinda svo:
Mennirnir lifa upprunaiega frumstæðu náttúrulífi, en
stofna ríki og þjóðfélag til verndar lífi, frelsi og eign-
um. Þetta eru hin náttúrlegu mannréttindi, er ríkið
má eigi skerða. Óhundið einveldi er ósamrýmanlegt
þessum mannréttindum og þvi er nauðsynlegt að lög-
gjafar- og framkvæmdarvaldið sé aðskilið. Hinn sanni
og rétti fullvaldi er fólkið sjálft, og það hefur vald til
að steypa stjórninni, ef því býður svo við að horfa.
„Þjóðin hefur jafnan vald til þess að losa sig við menn,
sem eru annaðhvort svo örvita eða illir, að þeir sitja
á svikráðum við líf og eignir þegnanna.“ (Locke). Þetta
var hin fræðilega réttlæting horgaralegra byltinga. Hún
fékk staðfestingu veruleikans í frelsisstríði Ameriku-
manna 1776 og í frönsku byltingunni 1789.
A Englandi hélt þessi hættulega þjóðfélagsheimspeki
kyrru fyrir á vinnustofum rólyndra fræðimanna. f
Frakklandi fór hún eldi um allt þjóðfélagið og var hoð-
uð af húsþökunum. Franskar bókmenntir, fagurfræði-
legar og visindalegar, voru á blómaskeiði einveldisins
bundnar hirðinni. 18. öldin leysti franskan anda úr her-
leiðingu konungsvaldsins. Bókmenntirnar urðu þjóðar-
eign og höfðu allt hið menntaða Frakkland að mark-
aði. Heimspeki upplýsingarinnar varð hið bitra áróð-
ursvopn frönsku borgarastéttarinnar, er ruddi pólitísku
valdanámi hennar brautina. Undir merki hennar sagði