Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Side 62

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Side 62
56 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR öldum saman: rentur af lánuðu fé fékk nú lagalega við- urkenningu, lög um okur eru afnumin, gildin eru leyst upp, jarðaafnotin eru losuð úr viðjum hins gamla bændasamfélags, verksmiðjueftirlit, vöruskoðun og framleiðslufyrirmæli eru numin úr gildi, útflutnings- tollar eru afnumdir, tollmúrar innanlands eru rifnir niður, innflutningshöft og tollar gerðir mýkri og þjálli. Jafnrétti i sköttum var lögboðið engu siður en jafn- rétti fyrir lögunum. Öll þessi löggjöf var samþykkt í nafni frelsisins, skynseminnar og jafnréttisins og svo var einnig um bannið gegn verkamannasamtökum. Borgarastéttin varpaði af sér viðjum og arfi liins gamla stjórnarfars. Hún þóttist nú geta staðið ein og óstudd 1 atvinnulegum efnum, laus allrar handleiðslu ríkisins. í iðju sinni vildi hun vera allt, en liún vildi einnig vera það í stjórn landsins. Þar undi hún engum yfir- boðara af guðs náð, heldur af náð liennar sjálfrar. Þessi pólitíski metnaður og stéttarlega einræðislöngun hinnar frönsku horgarastéttar hefur fengið lögfesti i stjórnarskrá þeirri, er þjóðsamkoman samþykkti og gekk i gildi haustið 1791. Með stjórnarskrá þessari skapaði hin franska borg- arastétt stjórnarfyrirkomulag i sinni eigin mynd. Hún reisti konungsvaldið á lagalegum grundvelli, en skar af því klærnar með því að veita því aðeins frestandi neitunarvald. Hún svipti aðalinn tækifæri til að lireiðra um sig i efri deild, því að löggjafarsamkoman var ein og óskipt. Framkvæmdar- og löggjafarvaldið er svo stranglega aðskilið, að konungur getur ekki tek- ið sér ráðuneyti meðal meðlima löggjafarsamkomunn- ar. 1 öllum þessum ákvæðum birtist ótti borgarastétt- arinnar við hið konunglega framkvæmdarvald. Mannréttinda-yfirlýsingin hafði hoðað frelsi og jafn- rétti allra manna, og hún var prentuð sem forspjall fyrir framan stjórnarskrána. En hrosshófur hinna horg- aralegu stéttarhagsmuna gægðist undan slcikkju jafn-

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.