Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Side 69

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Side 69
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR (33 saman á fundi í ráðhúsinu. Deildirnar höfðu þegar veitt hinum óvirku borgurum aðgang að fundum sínum, og nú tóku þær völd borgarinnar í sínar hendur. Undir forystu Jakóbína og með aðstoð vopnaðra sambands- liða utan af landi var konungsvaldinu steypt af stóli. Nú kom berlega i ljós, að löggjafarþingið leiddi ekki lengur byltinguna, heldur lét stjórnast af lienni. Lög- gjafarþingið samþykkti gerðir lýðsins, setti konung frá völdum og boðaði kosningar til nýrrar þjóðsamkomu, er kosin skyldi með almennum kosningarrétti. Nýtt framkvæmdarráð var kosið undir forsæti Dantons, er tekið liafði virkan þátt í uppreisn Parísarborgar. Lýðveldisstefnan átti sigri að hrósa yfir konungsvald- inu. En viðburðir ágústmánaðar táknuðu einnig ann- að og meira: almúginn hafði sigrazt á borgarastéttinni, sem ráðið hafði lögum og lofum á löggjafarþingi Frakk- lands fyrir tilstyrk fjárbundins kosningaréttar. Það féll í lilut hins róttæka lýðræðis franskra smáborgara, að ryðja byltingunni braut yfir allar þær torfærur, er nú blóðust að henni. Saga hinnar nýju þjóðsamkomu, kon- ventunnar, er frásögnin um það, livernig lýðræðinu tókst leiðsagan. VI. Eftir uppreisnina 10. ágúst var bið byltingarsinnaða bæjarráð Parísar einrátt í böfuðborginni. Það beitti nú óspart rétti sínum til húsrannsókna og fangelsana, sem nauðsynlegar voru til að halda öflum gagnbyltingar- innar i skefjum. Tvennt var það, sem æsti bugi bylt- ingarmanna í Paris: landráð konungs, sem nú voru skjallega sönnuð, og ófarir franska hersins. IJvert virki Frakklands á fætur öðru féll í bendur óvinunum. Tryll- ingur mikill greip lýðinn og hina fyrstu daga septem- liermánaðar voru um 1600 fangar drepnir i París án dóms og laga. Þessi víg átlu að skjóta innlendum fjend- um byltingarinnar skelk í bringu. En að því loknu sendi

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.