Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Page 72
6ö
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
mánuði 1793 hafði konventan sldpað velferðarnefnd, er
hafa skyldi eftirlit með stjórninni. Um sumarið er
nefndin endurskipulögð, Danton er varpað úr lienni,
og hún verður skipuð Robespierre og nánustu fylgis-
mönnum hans. Velferðarnefndin varð nú hin raunveru-
lega stjórn Frakklands. Konventan lýsti þvi yfir 10. okt.
1793, að stjórn Frakklands væri byltingarsinnuð, unz
friður næðist. Velferðarefndin og byltingardómstóllinn
urðu nú þau tvö ógnartæki, er konventan notaði til
að brjóta á hak aftur mótþróa Girondista, gagnbylting-
arsinnaðra hænda, aðalsmanna og klerka. Hinir frönsku
hyltingarherir urðu nú aftur sigursælir i viðskiptum
sínum við bandalag Evrópu. En þegar mesti háskinn
var liðinn lijá, þá var í raun réttri grundvellinum kippt
undan einræði Parísar. Smáborgarastétt Frakklands
hafði undir forustu Fjallsins tekið höfuðið af liverri
hreyfingu, er gat orðið hættuleg einingu Frakklands
og' pólitísku sjálfstæði. En hún gat ekki ráðið fram
úr atvinnulegum og félagslegum vandamálum Frakk-
lands með fallöxinni einni saman. Með lögum um há-
marksverð á vörum reyndi liún að lina neyð undir-
stéttanna. Með nauðungarlánum og fjárnámi reyndi
hún að kúga auðmennina til byltingarsinnaðs þegnskap-
ar. En það voru aðeins bráðabirgðaráðstafanir, sem
nauðsyn líðandi dags og hernaðarþörfin réttlætti. Þær
gátu aldrei orðið til frambúðar, nema því aðeins að
þær stefndu að eignanámi framleiðslutælcjanna og sósi-
alistísku þjóðfélagi. En slík firn urðu ekki i bvltingu,
sem liafði ávallt boðað friðhelgi hins borgaralega eigna-
réttar.
Ógnarstjórnin varð áf þessum ástæðum meiningar-
laus i sögulegum skilningi. Innan Fjallsins hreiddist út
pólitísk limafallssýki: Robespierre heggur fjTst til
vinstri og losar sig við hina guðlausu og ofsafullu Hé-
bertista. Síðan heggur liann til hægri og fórnar Danton
og hinum veiklunduðu vinum lians. Sjálfur stóð hann