Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Side 77
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
71
Skapgerð hans og lyndiseinkenni endurspeglast i næstum hverju
kvæði, sem hann yrkir. Jafnvel náttúrufyrirbrigðin sjálf taka
ósjálfrátt á sig svip hans: greniskógurinn, fjallið, vatnið, læk-
urinn og áin. — Með hinni snjöllu og ítarlegu túlkun sinni
á manninum Stephani G., hefur próf. Nordal gert lesandanum
það margfalt léttara að njóta kvæðanna, skilja þau og brjóta
til mergjar. Það hefur verið mönnum efni til undrunar, hvílikt
stórverk einyrkinn í Klettafjöllum gat innt af hendi, þrátt fyrir
lífskjör sín. Það er óneitanlega skemmtilegt, að fylgja rannsókn
Nordals í þessu efni. Honum tekst að bregða skýru ljósi yfir
tröllauknar gáfur Stephans annarsvegar og erfiðleika hinna ytri
aðstæðna, sem voru næstum að sama skapi risavaxnir, hinsveg-
ar. Próf. Nordal segir sjálfur um þessa rannsókn sina: „Því fer
svo fjarri, að ég hafi haft neina löngun til að gylla hann, að
ég hef leitað dauðaleit að einhverjum höggstöðum á honum í
bréfum hans.-----------En ég reið ekki feitum hesti frá þeirri
leit.---------Ég hef gefizt upp fyrir honum, setzt við fótskör
lians. Það er sannleikurinn.“ Niðurstaðan er í einu orði sú, að
Stephan hafi verið ofurmenni, og hvorki meira né minna. Þessi
skoðun er sett fram á svo traustan og sannfærandi hátt, að
fáir munu geta efazt um réttmæti hennar.
En próf. Nordal gefur sér líka tíma til að lýsa skáldskap Step-
hans, einkennum hans, kostum og göllum (i kaflanum „Snilld og
torf“). Maður saknar þess eins, að þessi kafli skuli ekki vera
miklu lengri. Aðrir kaflar eru helgaðir afstöðu skáldsins til föð-
urlands og fósturlands og þeirra vandamála samtimis, sem efst
voru í huga þess: trúmála og þjóðfélagsmála. En skoðanir Step-
hans og afstaða til þessara mála eru eitt af þvi merkilegasta
í fari hans, enda deildi hann á kirkju, auðvald, styrjaldir og
slórveldastefnu af meira mannviti og skarpari skilningi, en um
leið hlífðarlausar og markvissar en kannski nokkur annar ís-
lendingur.
Það er út af fyrir sig aðdáunarvert, hve miklu og þungvægu
efni höfundinum hefur tekizt að koma fyrir í ekki lengra máli.
Hins er ekki að dyljast, að margt er enn ósagt um Stephan,
skáldskap hans og lífsbaráttu. Jafn eldheitur bardagamaður og
Stephan var, hlaut t. d. að taka mikilvægan þátt i félagslifi
landa sinna vestra. En sagan um þá baráttu hans er enn að
mestu órituð.
Það er meira vandaverk að taka saman úrval úr Ijóðum Step-
hans, en mönnum kann að virðast í fljótu bragði. Markmið próf.
Nordals hefur verið það, annarsvegar, að velja úr beztu kvæði
skáldsins, og gera úrvalið um leið sem allra fjölbreyttast, til þess