Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Page 37

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Page 37
JÓN BISKUP ARASON OG SIÐASKIPTIN 195 Kristján III. ritaði klerkum í Hólabiskupsdæmi þetta ár og bauð þeim að kjósa sér annan biskup í stað Jóns Arasonar. Konungur segir, að biskup hafi á allan hátt forsmáð kirkjuskipan sína og brotið marg- víslega af sér gegn kóngdóminum og föðurlandi sínu og verið dæmdur útlægur af alþingi. Jón var sennilega aldrei dæmdur útlægur á alþingi á annan hátt en þann, að konungsbréf frá 1549 hefur verið lesið í lög- réttunni eins og aðrar konunglegar tilskipanir, sem landsmenn urðu að þola. Sömuleiðis ritaði konungur Daða Guðmundssyni og Pétri Ein- arssyni og bað þá að styrkja hirðstjórann Laurenzíus Mule við það að handtaka Jón Arason, svo að konungur neyddist ekki til þess að senda erlendan her til landsins almúganum til stórtjóns. Um svipað leyti sendi Pétur Palladius Sjálandsbiskup Jóni bréf og reynir þar að telja um fyrir honum og segir, að Sigvarður ábóti hafi tekið sinna- skiptum, en Jón geti náð sáttum við konung, ef hann snúi frá villu sinni. Þessi bréf höfðu auðvitað engin áhrif á framkomu Jóns, en styrktu aftur á móti andstæðinga hans. Nú vildi svo til, að þýzkir kaupmenn höfðu ruskað umboðsmanni konungs allóþyrmilega um vorið. Arið 1549 gerðu umboðsmenn konungs allmikinn varning upptækan fyrir Hamborgarmönnum, en kaupmenn komust að samkomulagi við hans hátign um veturinn og fengu bréf upp á það, að vörunum skyldi skilað aftur. Þegar kaupmenn komu hingað um vorið, settu þeir kaupstefnu í Hafnarfirði, og kom þangað Kristján skrifari, umboðsmaður höfuðs- manns. Á kaupstefnu þessari urðu nokkrar ryskingar, og gripu kaup- menn Kristján og keyrðu í bönd. Þannig stóðu málirx, er Laurenzíus Mule, höfuðsmaður, kom út, en konungi hafði láðst að tilkynna hon- um, að kaupmenn ættu að fá aftur upptækan varninginn. Þáefðist Mule fyrir og stefndi málunum til alþingis. Kaupmenn létu þá gremju sína bitna á Kristjáni skrifara. Þeir fóru með mannsafnaði um Suðurnes og létu hann hlaupa fyrir hestum sínum og vísa sér á fiskbirgðir kon- ungs og kaupmanna, en þröngvuðu bændum til að flytja fiskinn út í skip. Ofan á allt þetta varð Kristján að leggja á borð með sér tvær lestir af skreið, meðan hann var í haldi. Að lokum var honum sleppt gegn þvi, að hann talaði aldrei illa um Hamborgara, því að ella skyldi enginn danskur maður halda lífi hér á landi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.