Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Blaðsíða 143
MÁL OG MENNING
Eitt af verkefnum Máls og menningar er að koma í hendur alþýðu beztu verkum
íslenzkra höfunda jafnóðum og félaginu gefst kostur á. Urval Sigurðar Nordals úr
Andvökum Stephans G. og Rit Jóhanns Sigurjónssonar eru félagsmönnum verð-
mæti sem þeir vildu ekki vera án. Nú bætist við Bréf til Láru eftir Þórberg ÞórS-
arson. Við höfum komizt að samkomulagi við höfundinn og Ragnar Jónsson, for-
stjóra Helgafells, um að Mál og menning fái Bréf til Láru til útgáfu handa félags-
mönnum, en Helgafell gefur bókina út til sölu á frjálsum markaði. Bréf til Láru
er þótt ekki sé nema 25 ára þegar í flokki sígildra verka íslenzkra og varð á auga-
bragði fræg bók. Árum saman hefur Bréfið verið uppselt og þótt fengur ef komið
hefur eintak til fornbóksala. Á sextugsafmæli Þórbergs í fyrra var bókin gefin út
í 250 eintökum aðeins til gjafa, en að öðru leyti verðlögð á 500 kr. eintakið. Af
þeim fjölmenna hópi sem er í Máli og menningu mun Bréfið vera í tiltölulega
fárra höndum, það hefur orðið ein af þeim bókum sem eru eins og lesnar upp til
agna, og til ungu kynslóðarinnar sem farið hefur hennar alveg á mis á hún ekki
síður í dag fullt erindi. Bréf til Lám fer ekki heldur að þessu sinni eitt saman,
höfundur ritar þar nýjan viðbæti og tekur samtíð sína enn rækilega til bæna. Eft-
irmálinn er yfir tvær arkir, ritaður af fjöri og andríki, svo að vafasamt er að Þór-
bergi hafi öðru sinni tekizt betur upp.
Með Bréfi til Láru og tímaritsheftinu sem fylgir er útgáfu Máls og menningar
á þessu ári lokið. Við höfum þá gefið út þrjár bækur og tímaritið sem er þeirra
stærst, með öðrum orðum fjórar myndarlegar bækur fyrir aðeins 50 krónur. Þegar
athugað er að hvert íburðarlaust tímarit kostar nú kringum 30 kr. árgangurinn og
varla fæst nokkur bók undir 50 kr. býður Mál og menning vissulega kostakjör,
enda er nú eflaust teflt á tæpasta vað með að útgáfan standi undir sér.
Það er þó síður en svo ætlun mín að dást að því hve Mál og menning gefi mik-
ið út. Hvert ár sem ég lít yfir útgáfuna svíður mig einmitt sárast hvað lítil hún er.
Verðgildi 50 króna sem félagið er bundið við rýmar nú með hverjum mánuði, og
verður því ekki lengur með sama árgjaldi unnt að halda útgáfunni í horfinu.
Sennilega þykir það dirfskufull stefna og jafnvel hörkuleg að auka þá verulega
útgjöld félagsmanna þegar þrengir í ári. En þó er svo reyndar ekki ef rétt er á
litið. Mál og menning er í eðli sínu samtök almennings til menningarlegrar vam-
ar á þröngum árum. Þegar velmegun ríkir og menn hafa næga peninga er þeim
sama þótt þeir kaupi bækur háu verði. Einmitt þegar herðir að bindast menn sam-
tökum sér til vamar, þar á meðal til að spara sér útgjöld fyrir bókum, en án bóka
er ekkert líf. Mál og menning er til þess stofnað að berjast með alþýðu í fátækt