Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Blaðsíða 23
KÓREA í STRÍÐI
141
Til eru nægileg gögn í málinu — málskjöl, sem ýmist hefur verið al-
gerlega stungið undir stól eða mistúlkuð og rangfærð á hinn herfileg-
asta hátt. Látum þessi gögn tala.
Hinn 7. júní 1950 komu saman í Pjongjang allir forustumenn
„hinnar lýðræðislegu og þjóðlegu samfylkingar“ í Kóreu til þess að
ræða þau viðhorf, er skapazt höfðu með kosningaósigri Seoulstjórnar-
innar. Það lá í augum uppi, að með þessum siðustu atburðum höfðu
opnazt nýir möguleikar til sameiningar beggja landshluta, ef norðan-
menn væru vandanum vaxnir og sýndu nú einbeitt framtak. Og þessa
möguleika reið á að nota.
Hin þjóðlega samfylking ákvað að hefja þegar í stað áróðursherferð
til þess að koma til leiðar friðsamlegri sameiningu allrar Kóreu og það
sem fyrst. Samþykkt var að senda þrjá fulltrúa suður fyrir breiddar-
bauginn til þess að ná beinti sambandi við stjórnmálaflokka og önnur
félagasamtök, sem enn var leyft að starfa í Suður-Kóreu, í því skyni að
hefja samninga um leiðirnar til einingar. Samþykkt var og, að vœntan-
legar tillögur til samninga skyldu einnig lagðar fyrir Kóreunefnd Sam-
einuðu þjóðanna. Þeir einu, sem ekki skyldi samið við, voru fasista-
flokkar þeirra Syngman Rhees og Kim Son Su — einmitt þeir flokk-
arnir, er versta útreið höfðu fengið í nýafstöðnum kosningum.
Næst gerist svo það, að 10. júní senda fulltrúar hinnar þjóð-
legu samfylkingar Kóreunefndinni formlega tillögu um að efnt verði
til sameiginlegra kosninga í Kóreu allri, og skyldu þær fara fram í
ágústmánuði. Daginn eftir leggja svo samningafulltrúarnir af stað suð-
ur fyrir 38. breiddarbaug til funda við suðurkóreska flokka og félaga-
samtök. En ekki voru sendimennirnir fyrr komnir yfir markalínuna en
þeir voru, allir þrír, teknir höndum af lögreglu Seoulstjórnarinnar. Og
útvarpið í Seoul tilkynnti, að á næstunni myndi þeim verða stefnt fyrir
herrétt.
Þetta var fyrsti þáttur leiksins. Hér var um að ræða friðsamlegar
samningaumleitanir um framtíð Kóreu, og samningatillögurnar höfðu
auk þess fyrir fram verið lagðar fyrir fulltrúa Sameinuðu þjóðanna í
Kóreunefndinni. Hver var þarna árásaraðili?
Næsti leikur í taflinu kom frá alþýðuráðinu í Pjongjang 19. júní. Það
var orðsending, sem beint var milliliðalaust til hins nýkjörna þjóðþings
Suður-Kóreu og fól í sér eftirfarandi tillögur: