Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Blaðsíða 28
146
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
þús. hermenn og liðsforingjar tilbúnir að ráðast fram í eldlínuna . ..“
Og Bandaríkjamaðurinn er ekki eftirbátur forsetans í gortinu: „Einn
riðill (Regiment) úr suðurkóreska hernum getur borið sigurorð af
heilu herfylki norðanmanna . ..“
Dramb er falli næst, segir málshátturinn.
Löngu áður en stríðið hófst hafði Seoul-fréttaritari bandaríska stór-
blaðsins „New York Times“, Walter Sullivan, reynt að vekja athygli
heimsins á árásarfyrirætlunum ofbeldisseggjanna í Suður-Kóreu. T. d.
sendi hann blaði sínu merkilega frétt um atburð, sem gerðist í Seoul
14. marz 1950. Sá atburður er nokkuð einkennandi fyrir það pólitíska
andrúmsloft, sem hefur ríkt lengi í þessu furðulega verndarríki Sam-
einuðu þjóðanna.
Leiksviðið er réttarsalur í Seoul. Fram fyrir réttinn eru leiddir
þrettán meðlimir þjóðþings Suður-Kóreu — vitanlega úr stjórnarand-
stöðunni. Meðal hinna ákærðu er Kim Yak Su, er fram að þessum
tíma hafði verið varaforseti þjóðþingsins. Fangarnir voru leiddir í
salinn handjárnaðir og auk þess bundnir saman á streng. Walter Sulli-
van fékk að skyggnast í hið opinbera ákæruskjal, þar sem „glæpir“
hinna ákærðu voru taldir fram. Þeir voru sem hér segir:
Þeir höfðu gert tilraun til að steypa stjórn landsins með því að
ákæra hana fyrir fjárdrátt. í þinginu höfðu þeir barizt á móti fjárlaga-
frumvarpi stjórnarinnar. Enn fremur höfðu þeir krafizt endurskoðunar
á stjórnarskránni, er gengi í þá átt að draga úr valdi forsetans, en auka
völd þjóðþingsins og gera stjórnina ábyrga gagnvart þinginu. En svo
kom loks ein ákæran enn, eins og rúsína í enda blóðmörslangans:
Hinir ákœrðu höjðu sett sig upp á móti því, að herskarar Seoul-
stjórnarinnar gerðu innrás í alþýðulýðveldi Norður-Kóreu.
Væri'það til of mikils mælzt, að hinn athafnasami framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, Tryggvi í Hlíð, gæfi heiminum einhverja skýr-
ingu á jafnkynlegu fyrirbæri og hér var á döfinni? Hvernig má það vera,
að í landi, sem stendur undir béinu eftirliti og vernd Sameinuðu þjóð-
anna, skuli þingmenn vera dregnir fyrir rétt og dæmdir til refsingar
— svo alveg sé sleppt handjárnunum og strengnum — fyrir það að
hafa viljað hindra stjórn lands síns í að hefja — árásarstríð?
26. janúar 1950 var formlega stofnað til hernaðarlegs bandalags
milli suðurkóresku leppanna og Bandaríkja Norður-Ameríku. Var það