Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Page 30
148
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
einir ... vér munum veita yður stuðning, bæði efnislegan og siðferði-
legan.“
í þessari sömu ferð fann mr. Dulles það tímabært að fylgjast með
bandarískum og suðurkóreskum liðsforingjum í kurteisisheimsókn til
skotgrafanna við 38. breiddarbaug, þar sem her Suður-Kóreumanna
hafði þegar tekið sér stöðu.
Það var því síður en svo undrunarefni, er fréttaritari svissneska
kauphallarblaðsins „Neue Ziiricher Zeitung“ einmitt þessa dagana sendi
blaði sínu fréttapistil frá Seoul, þar sem leyst var frá skjóðunni á þessa
lund:
„Suður-Kóreu skortir mjög stór iðjufyrirtæki, og það hefur því
reynzt ógerlegt að sjá fyrir vinnu þó ekki væri nema broti þess at-
vinnuleysingjahers, sem er í landinu og mun nú nema um fjórum
milljónum. — Hér er enginn hörgull á fólki, er sér lausn erfiðustu vanda-
mála ríkisins í hernaðarárás á Norður-Kóreu. Herinn, sem er útbúinn
og þrautþjálfaður af Bandaríkjamönnum, telur um það bil 100 þús.
manna, auk 50 þús. manna lögregluliðs, og myndi í viðureign við
norður-kóreska herinn reynast honum fullkominn ofjarl.“ (N. Z. Z. 20.
júní 1950).
Til tryggingar gagnvart ritskoðuninni er svo náttúrlega bætt við
hinni venjulegu klausu, að það sé Bandaríkjastjórn, sem letji Suður-
Kóreumenn stórræðanna og reyni að firra vandræðum. — En var það
annars að letja stórræðanna að halda á floti duglausri stjórn, sem við
hvert tækifæri opinberaði árásarhug sinn? Var það að firra vandræð-
um að birgja upp her þessarar stjórnar, viðlíka árásarsinnaðan og hún
var sjálf, að geipilegu magni stríðsgagna og síðan að þjálfa slíkan
leiguher — til bardaga? Enn þá eitt merkilegt úrlausnarefni handa
lögfræðingnum Hlíðar-Tryggva að brjóta til mergjar — í tómstundum
þeim, er kunna að gefast frá styrjaldarrekstrinum í Kóreu.
3
Til eru haugar af skýrslum frá suðurkóreskum liðsforingjum, sem
teknir hafa verið til fanga. Þeir bera það einum rómi, að að kvöldi hins
24. júní hafi þeir fengið skipun um að hefja stórsókn gegn norðanmönn-
um í bítið næsta morgun. Allar þessar játningar hafa verið að vettugi