Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Side 34

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Side 34
152 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR framleiðslunnar, langfleygi og hraði flugvélanna, eyðileggingarmáttur atómsprengjunnar — þetta er þeirra hjálpræði og náðarmeðul. Þeim sést yfir það, sem í rauninni eitt skiptir máli: manninn sjálfan, sem á að nota tækin, viðbrögð hans, drauma, óskir og andúð — þetta, sem Hörup gamli eitt sinn nefndi „hinn lifandi varnarmúr fólksins”. 5 Verður árásaraðili sýkn saka, ef árás hans fer út um þúfur og snýst upp í ósigur? Er það ástæða til sýknunar og sakleysis að hafa ofmetið sinn eigin styrk? Sannleikur sögunnar er einn og ódeilanlegur. Það má afskræma hann eða fela um stundarsakir, og þá iðju stunda nú ýmsar þær stofn- anir, sem í orði kveðnu hafa tekizt á hendur það skylduverk að leiða fólkið í allan sannleika. Þeim kafla sögunnar, er um Kóreu fjallar, megna þó ekki málgögn þessi að umhverfa í lygi. Hin raunsanna saga Kóreu er þegar skrifuð — af þúsundum fórnarlamba ofbeldis, kúgunar og svika. Af öllum þeim þúsundum, er gáfu upp öndina í pyndingar- dýflissum Syngman Rhees, af öllum þeim, er hengdir voru upp í trén með fram þjóðvegum Suður-Kóreu eða tættir voru sundur af sprengj- um — made in U. S. A. Af öllum þeim þúsundum, er reknar voru frá heimilum sínum og enduðu ævina á vegum úti. Og nýja kafla þessarar raunasögu er stöðugt verið að skrifa — af sundraðri og þjakaðri þjóð, sem reis upp til varnar og gekk í stríð fyrir frelsi lands síns. — Sagan býr yfir einum leyndardómi: Þeir, sem drógu upp fána frelsisbaráttunnar, voru aldrei árásarmenn. Þvert á móti. Það voru alltaf þeir, sem á var ráðizt, en risu upp gegn ofbeldinu og óréttinum — til þess að ávinna sér réttinn til að vera frjálsir menn. Þessi gömlu sannindi eru nú dag hvern að hljóta nýja staðfestingu í Kóreu. Þar fá engu um breytt árásarákærur og stríðsyfirlýsingar hinna vestrænu „lýðræðis“-postula. Á. H. dró saman og endursagði úr bók höfundarins: Korea KÆMPER.

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.