Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Síða 64

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Síða 64
182 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR rækt — þá skyldi ekki setja ræktunarstöð fyrir ungar plöntur í mjög frjósaman jarðveg. „Ég veiti því athygli snemma í starfi mínu sem garðyrkjumaður, að ungar kyn- blandaðar plöntur, sem ræktaðar voru í frjósömum jarðvegi, stóðust miklu verr hið nýja loftslag en sömu jurtir sem sáð var í áburðarlausa og sendna jörð. Ef ala á upp kynblendinga eða nýjar tegundir er því venjulega betra að sá fræj- unum í frekar magurt land og sá þeim þétt, líka þótt um kynblendinga af ræktuðum tegundum sé að ræða. Það er sem sagt reynsluatriði, að uppeldisstöð fyrir ungar jurtir skyldi ekki setja í frjósama og velræktaða jörð — en á frekar mag- urt land með miðlungs rakamagni, en umfram allt á stað sem er í skjóli fyrir vind- um og morgunsól. Það er því betra að sá fræjunum á staði þar sem hallar mót vestri, en ekki mót austi eða suðri.“ Mitsjúrin hóf starf sitt sem brautryðjandi í vísindalegri garðyrkju í Rússlandi um það leyti sem rússneska auðvaldsskipulagið var að rísa, en lénsskipulagið að líða undir lok. Leifar bændaánauðarinnar voru ekki með öllu horfnar. Garðyrkjan í Mið-Rússlandi, þar sem Mitsjúrin starfaði, var þá á mjög lágu stigi, engar fram- farir höfðu orðið frá ómunatíð, aðeins voru ræktaðar fáeinar tegundir af algeng- ustu ávöxtum, svo sem eplum, perum, plómum og súrum kirsiberjum. Ávextir eins og sæt kirsiber, ferskjur og vínþrúgur sáust aðeins í heitum gróðurhúsum á stöku stað, en ekki þekktist að rækta þessar tegundir undir berum himni. Árlega voru fluttir inn ávextir frá suðurhéruðum Rússlands og frá útlöndum fyrir háar upp- hæðir. Þau höfuðverkefni sem Mitsjúrin setti sér með starfi sínu má telja þessi fjögur: 1) að endurbæta þær tegundir aldintrjáa sem fyrir voru. 2) að færa takmörkin fyrir ræktun hinna ýmsu aldintrjáa eins langt norður á bóginn og mögulegt væri. 3) að breyta í ræktaðar aldin-jurtir með ætum ávöxtum þeim villtu frostþolnu tegundum, sem vaxa í Rússlandi og bera ávöxt árlega, svo sem reynir, hafþyrnir og fuglakirsiber. 4) að skapa algerlega nýjar tegundir aldintrjáa og runna, sem fuRnægðu að verulegu leyti fyrirfram gerðum kröfum ræktandans. Áratugum saman starfaði Mitsjúrin að endurbótum á ávaxtaræktinni og með ótrúlega miklum árangri, t. d. framleiddi hann meir en 300 ný afbrigði af aldin- trjám og berjarunnum. Allt þar til bolsévíkar komust til valda í Rússlandi starf- aði hann án aðstoðar hins opinbera og án .viðurkenningar og skilnings, enda þótt starf hans hefði ómetanlega þýðingu fyrir landbúnað Rússlands. Þegar Mitsjúrin gerði upp 40 ára starf sitt í ritgerð sem hann skrifaði árið 1914 lýsir hann árangurslausum tilraunum sínum til að fá stuðning yfirvaldanna, svo að starf hans og reynsla mætti koma að sem beztum notum. Honum er þungt í skapi, finnst hann hafi hálfvegis unnið fyrir gýg, hann á í fjárliagserfiðleikum og heilsan er biluð. Þó hafði landbúnaðarráðuneyti Banda- ríkjanna á árunum 1911—1913 hvað eftir annað boðið honum að flytjast til Ame- ríku, þar sem honum yrðu veitt þau starfsskilyrði er hann óskaði, einnig var hon-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.