Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Blaðsíða 68

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Blaðsíða 68
186 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Eldsumbrot á Spáni I 12 löng ár hefur einhver dáðrakkasta þjóð Evrópu, spanska þjóðin, borið þjáningar sínar í hljóði, stolt og þrjózkufull. Tólf ár eru liðin síðan Vesturveldin, Bretland og Frakkland, sviku hana særða og sigraða í hendur böðlum sínum. Á þessum 12 árum gerðust mikil tíðindi í heiminum: heil heimsstyrjöld var á enda kljáð, byltingar urðu í fjölmennustu þjóðlöndum, en spanska þjóðin sat um kyrrt og bærði ekki á sér. Húsbændur Francós, Hitler og Mússólíni, dóu báðir eins og hundar að loknum glæpaferli sínum, en hinn spanski kjölturakki þeirra lifði af öll mótmæli hins siðaða heims. Loks skildu fulltrúar vestrænnar menningar, að þessi langlífi blóðhundur mundi geta orðið liðtækur bandamaður vestræns lýð- ræðis. Hann var tekinn úr banni Sameinuðu þjóðanna, Vesturveldin og fylgitungl þeirra tóku upp aftur stjómmálasamhand við hann, og Utflutnings- og Innflutn- ingsbankinn dældi í hann 12 milljónum dollara. En þegar ætla mátti að þessi góð- vinur páfans og riddari vestrænnar siðmenningar sæti grónari í söðlinum en flestir aðrir samtíðarmenn hans, bárust þær furðufregnir um heiminn, þrátt fyrir vatns- þétta ritvörzlu, að allsherjarverkfall hefði brostið á í Barcelónu, hinn 12. marz síðastl. Þessi tíðindi gerðust nokkru eftir að íbúar borgarinnar höfðu neytt stjóm- ina til þess að lækka aftur sporvagnsgjöld með því að láta alla sporvagna hinnar katalónsku höfuðborgar ganga tóma. Verkfallið breiddist út um allan Norður- Sp’án og um hálf milljón manna mun hafa tekið þátt í því. Stórar kröfugöngur voru farnar um götur Barcelónu fyrir framan augun á lögreglu og her Francós, gráum fyrir járnum. Stjórnin varð að senda lögreglu og her alla leið sunnan frá Madríd til þess að bæla niður uppþotin, þúsundir verkamanna voru handteknir, en svo var þungi alþýðuhreyfingarinnar mikill, að stjórnin sá sér þann kost vænst- an að sleppa þeim aftur úr haldi. Þótt kyrrð kæmist aftur á um stund, þá ólgaði þó víða undir, og í lok aprílmánaðar gusu verkföll upp á nýjan leik, en stúdenta- uppþotin eru ósvikinn vottur þess, að hér er um hreyfingu að ræða, sem nær langt inn í smáborgarastéttina. Eftir 12 ára harðstjórn og óstjórn Francós er Spánn staddur í atvinnulegri og pólitískri kreppu, sem ekki verður leyst nema á einn veg: uppreisn gegn Francó og afnámi þess stjórnarfars, sem hann hefur komið á. Fáir viðburðir hafa vakið slíkan fögnuð meðal alþýðu og frjálslyndra manna um heim allan sem allsherjarverkfallið í Barcelónu. Verkfallið var skýrasti votturinn um þann undramátt, sem býr með spanskri alþýðu, er hún fékk brotið af sér hlekki fasismans, þótt ekki væri nema stutta stund. Fleiri slíkir viðburðir munu á eftir fara. Það var einnig ljóst af öllu handbragði uppreisnarinnar, að skipulögð samtök stóðu að baki henni. Francóstjórnin var auðvitað ekki sein á sér að feðra þessa fyrstu stóruppreisn, sem um getur í sögu hins spanska fasisma. Svo sem vænta mátti var kommúnistum um kennt. Meiri heiður verður kommúnistaflokkn- um spanska ekki sýndur. En við nánari athugun er það ljóst, að uppreisnarhreyf- ingin gegn Francó er svo víðtæk, að hún verður ekki kennd við einn flokk. Alls- herjarverkfallið í Barcelónu er aðeins fyrsti stormaboðinn í landi, sem bíður bylt- ingarinnar í ofvæni. Á Spáni eru 17000 stórjarðeigendur, sem eiga tvisvar sinnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.