Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Blaðsíða 70
188
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
menningsálit alls heimsins á móti sér, og stjórnir þeirra ríkja, sem eru Ameríku
annars svo fylgispök, verða aS láta undan þessu almenningsáliti. Þegar Truman
forseti birti frávikningu MacArthurs þann 11. aprfl, þá var það fyrsti stóri sigur-
inn, sem Evrópa hafSi unniS í viSskiptum sínum viS stórveldiS í Vesturálfu.
í tilkynningu sinni sagSi Truman, að MacArthur hafi ekki séS sér fært aS
fylgja stefnu Bandaríkjanna og SameinuSu þjóðanna í Kóreu og hafi brotið þá
skipun, sem honum hefði verið gefin í desember, að hann mætti ekki láta hafa
eftir sér nein þau ummæli, er utanríkis- og hermálaráðuneytið hefði ekki áður
samþykkt. En í útvarpsræðu næsta dag lét Truman svo um mælt, að „foringja-
skiptin í Austurlöndum hafi ekki í för með sér neinar breytingar á stefnu Banda-
ríkjanna". Það lítur því ekki út fyrir, að Bandaríkjastjórn ætli að leita friðsam-
legrar lausnar á Kóreustríðinu. Þegar athuguð eru orð og ummæli Bandaríkja-
stjórnar þessa aprfldaga, þá verSur ekki annaS séð en að hún hafi verið á sama
máli og hershöfðingi hennar. En hún neyddist til að fóma honum þegar út leit fyrir,
að vinslit mundu verða með Bandaríkjunum og hinum pólitísku fylgiríkjum
þeirra. Þrátt fyrir þetta verður frávikning MacArthurs að teljast mikill sigur fyrir
friðaröflin um gervallan heim.
Klofningur í brezka Verkamannaflokknum
í síðasta Annál erlendra tíðinda birtist grein eftir einn af helztu fræðimönnum
Verkamannaflokksins, Cole prófessor, og vom skoðanir hans þá túlkaðar á þá lund,
að Verkamannaflokkurinn væri haldinn slíkum þverbrestum, að til klofnings mundi
draga. Þetta er nú þegar komið fram. Einn af skeleggustu leiðtogum flokksins,
Aneurin Bevan, verkamálaráðherra, hefur sagt af sér ráðherraembætti og gert grein
fyrir því í ræðu í neðri málstofunni, þar sem hann veittist mjög harðlega að stefnu
stjórnarinnar. í lausnarbeiðni sinni kemst Bevan svo að orði um fjárlagafrumvarp
stjómarinnar: „Það er rangt vegna þess, að það grundvallast á svo miklum hem-
aðarútgjöldum á næsta ári, að það er blátt áfram ekki hægt að framkvæma það
nema með taumlausri eyðslusemi. Það er rangt vegna þess, að það telur hækkað
vöruverð vera meðal til að skera niður þarfir almennings og mun því valda alvar-
legum truflunum í iðnaðinum. Það er rangt vegna þess, að það er upphaf á þeim
niðurskurði félagslegra útgjalda, sem sósíaldemókratar hafa verið sérstaklega
stoltir af, og veittu Stóra-Bretlandi siðferðilega fomstu í heiminum."
Hinar geysilegu fjámpphæðir, sem brezka Verkamannastjómin áætlar til hem-
aðarþarfa næstu 4 ár — nærri 5 milljarðar £ — munu gera að engu þá félags-
málalöggjöf, sem er eina innihaldið í því fyrirbrigði, er venjulega kallast „brezk-
ur sósíalismi". Verkamannastjómin hefur lagt þennan stríðsskatt á þjóðina eftir
beinni skipun frá Washington og hefur fyrir þá sök spilað svo af sér, að allar lík-
ur em til, að Verkamannaflokkurinn missi völdin í næstu kosningum og verði að
afhenda þau íhaldsflokknum. Liðhlaup Bevans er aðeins fyrsta merki þeirrar
upplausnar, er nú breiðist út í Verkamannaflokknum.