Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Síða 71

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Síða 71
ANNÁLL ERLENDRA TÍÐINDA 1951 189 Olíumólin í íran I lok aprílmánaðar undirskrifaði íranskonungur lög um þjóðnýtingu olíuvinnsl- unnar í Iran. Þótt reynslan eigi eítir að skera úr því, hvað þessi þjóðnýting felur í sér, þá dylst engum, að með lögum þessum urðu þáttaskil í sögu brezka heims- veldisins, en þó einkum í sögu hins brezka olíuveldis. Hið mikla brezka olíufélag, Anglo Persian Oil Co. var eitt af máttarstólpum Bretaveldis í Vestur-Asíu og þjóð- nýting eigna þess í íran bætir einum naglanum enn í líkkistu heimsveldisins. Iran — Persía fomaldarinnar — var um aldamótin síðustu í tölu þeirra landa, sem kölluð voru „áhrifasvæði". Það var hvorki sjálfstætt né nýlenda í þjóðréttar- legum skilningi. En stórveldin eignuðu sér „áhrif“ í landinu. í norðurhlutum ír- ans seildist rússneska keisarastjómin til áhrifa, en suðurhémð landsins lágu við sjálfa þjóðbraut hins brezka heimsveldis milli móðurlands og Indlands. Um aldamótin síðustu fékk brezkur þegn, Ástralíumaðurinn Knox d’Arcy, einkarétt til olíuvinnslu í suðurhéruðum Persíu. Leyfið var veitt til 60 ára gegn 40 þúsund £ fúlgu út í hönd og 16% greiðslu af nettóágóða í framtíðinni. Árið 1903 stofnaði hann fyrsta olíuvinnslufélagið í Iran með 600.000 £ höfuðstól. Um þetta leyti tók Þýzkaland að líta íran ágirndaraugum og þegar það réðst í hið mikla fyrirtæki að byggja járnbrautina frá Berlín til Bagdad, tókust sættir með hinum fornu fjendum og keppinautum, Bretlandi og Rússlandi, og árið 1907 skiptu þau Persíu á milli sín í áhrifasvæði. Hlaut Rússland norðurhémðin að „áhrifasvæði", en Bretland suðurhémðin. Undir þessum suðurhémðum lágu fald- ar einhverjar mestu olíulindir í heimi. Á næstu árum varð mönnum ljóst, að olían mundi eiga eftir að verða einn mik- ilvægasti orkugjafi í rekstri hafskipa. Árið 1908 stofnar Knox d’Arcy hið fræga olíufélag Anglo Persian Oil Co. Sex árum síðar lét flotamálaráðherra Bretlands, Winston Churchill, enska ríkið kaupa meirihluta verðbréfanna í olíufélaginu fyrir 2.200.000 £. Slík kjarakaup hafði Bretland ekki gert síðan 1876, er Disraeli keypti hlutabréf Súezskúrðarins fyrir 4 milljónir £. Hvortveggja kaupin báru kaupendum sínum vitni um pólitíska snilligáfu. Síðan þetta var hefur Bretland haldið fast um þessa dýrmætu eign sína og fært út veldi sitt í fran, unz það hafði þar einkaleyfi á svæði á stærð við ísland — hundrað þúsund ferkm. Á ári hverju eru unnin þar um 30 milljón tonn af hráolíu. Á árunum 1905—1932 höfðu Bretar haft í hreinan ágóða af sölu íranskrar olíu 171 milljón £, en á sama tíma höfðu aðeins 11 milljón £ mnnið til íransstjórnar. Árið 1933 var nýr olíusamningur gerður milli Bretlands og íransstjórnar. Skyldi samningur þessi vera í gildi til ársins 1993. Samningur þessi var gerður meðan brezk herskip sigldu um Persaflóa, og ráðherrann Taqizadeh, er undirritaði samn- inginn, sagði íranska þinginu í janúar 1949, að hann hafi „ekki átt á öðru völ“. íranska stjómin var alla stund mjög óánægð með þennan nauðungarsamning, og samdist þá með henni og Bretlandi um „samningsviðbót“ er veitti íran nokkm meiri hlutdeild í gróðanum. En þegar til átti að taka neitaði íranska þingið að samþykkja þessa „viðbót“ og í aprílmánuði þ. á. samþykktu báðar þingdeildir að
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.