Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Side 76
194
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Ásmundur Sveinsson: HelreiSin
hana heim. Síðan hefur hún legið hér í pakkhúsi á hafnarbakkanum og er þó al-
veg tilbúin til að setja hana upp til að prýða einhvern húsvegg í hænum. Það
reyndist ókleift, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, að fá hana á svokallaða Reykjavík-
ur-sýningu, sem haldin var hér um árið, svo að almenningi gæfist þó kostur á að
sjá hana. Ríkissafnið mun eiga nokkrar myndir eftir Sigurjón, sem væntanlega
verða til sýnis á Listasafninu þegar þar að kemur. En ekkert af listaverkum hans
prýða þó götur, garða eða torg höfuðstaðarins — ennþá.
Ásmundur varð að eyða þremur árum af dýrmætum starfstíma, eins og illræmt
er orðið, til að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Húsið er að vísu listaverk og í
fullu samræmi við stíl þann, sem hann hefur tileinkað sér í höggmyndalist. Og nú,
þegar hann hefur dreift myndum sínum um garðinn umhverfis húsið, þá er hvort-
tveggja til hins mesta augnayndis fyrir þá sem fram hjá ganga. Ég vænti þess, að
menn liafi veitt því eftirtekt, hversu fagurlega myndir hans bera við Bláfjöllin
stundum þegar gengið er inn eftir Sigtúni.
Ég gat þess áður, að íslendinga skorti áhuga fyrir höggmyndum. Þó brá svo
við ekki alls fyrir löngu, að einhver fítonsandi greip nokkra ágætismenn, ágæta
á sínum sviðum, en sem ekki var vitað um að hefðu hinn minnsta áhuga, vit né
þekkingu á höggmyndum. Áhugi þeirra varð því algjörlega neikvæður. Hér í