Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1958, Page 56

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1958, Page 56
MAGNÚS Á. ÁRNASON Nicolae Grigorescu að er haft fyrir satt, að samtíðar- maður Grigorescus franskur, sem lengi dvaldi í Rúmeníu, hafi skrifað löndum sínum, að ef þeir vildu kynnast Rúmeníu, skyldu þeir skoða verk Grigorescus. Þetta má til sanns vegar færa, því hann er allra manna þjóðlegastur í list sinni, í beztu merkingu þess orðs. Ást hans á náttúru landsins, þjóðinni, alþýð- unni, lífinu eins og því var lifað — skín út úr hverri mynd. Hann bar höfuð og herðar yfir alla samtíðar listamenn þar í landi seinni hluta nítjándu aldar sökum veruleika- skynjunar sinnar og yfirburða bæði í tækni, listfengi og fjölhæfni, enda er hann talinn faðir nútíma listar í sínu landi, þó aðrir komi þar einnig til greina. Hann er einn af þeim fá- gætu listamönnum, sem allir geta notið, jafnt alþýðumenn sem listfræð- ingar, sem stafar af því hvað hann er einfaldur og sannur. Hann er að vísu ljóðrænn í eðli sínu, en aldrei svo, að það skyggi á sannleikann. Hann naut þvi brátt almennrar viðurkenningar og aðdáunar og er í dag talinn með mestu mönnum sinnar þjóðar. Áður en lengra er haldið, skal ég geta helztu æviatriða hans. Nicolae Grigorescu er fæddur 15. maí 1838 í þorpinu Pritaru í Dambo- vita-héraði. Foreldrar hans voru fá- tækir smábændur, sem áttu sjö börn. Faðirinn dó þegar Nicolae var aðeins sex ára gamall. Hann ólst því upp við harðrétti og fátækt, sem setti mót sitt á drenginn fram eftir árum, en skyggði þó aldrei á lífsgleði hans eða trú á lífið eins og skýrt kemur fram í verkum hans. Móðir hans, sem var algjör öreigi, fluttist til Búkarest, þar sem hún vann baki brotnu frá morgni til kvölds til að hafa ofan af fyrir börnum sínum. Drengurinn Grigorescu fór snemma að reyna að létta undir með móður sinni. Tíu ára gamall var hann settur til náms hjá helgimyndamálara. — Á þeim árum var list Rúmena svipað farið og hjá okkur um síðustu alda- mót: tilraunir höfðu verið gerðar við andlitsmyndir og lýsingu bóka, en 46
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.