Tímarit Máls og menningar - 01.03.1958, Blaðsíða 66
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
versku í æðri stærðfræði, líffræði og
efnafræði, sögu og vindverskum bók-
menntum. Aðrar bækur -eru á leið-
inni, svo að eftir þrjú eða fjögur ár
verða undirstöðubækur í öllum grein-
um á vindversku. Ennfremur fá börn-
in vindversku bækurnar til eignar, en
í þýzkumælandi skólum verða nem-
endurnir að skila bókunum aftur þeg-
ar þeir eru búnir að nota þær!
Stjórnarvöldin, eða að minnsta
kosti sum þeirra, gera allt hvað þau
geta til að draga börnin að vind-
verskum skólum. Ef barn kemur frá
vindversku heimili, er málið auðleyst,
það fer af sjálfu sér í vindverskan
skóla. En það eru mörg börn þýzku-
mælandi foreldra í vindversku þorp-
unum, og flest þeirra kunna að
minnsta kosti nokkur vindversk orð,
og foreldrar slíkra barna eru hvött —
oft með árangri — til að senda börn
sín í vindverskan skóla. Á þann hátt
verða þau fyllilega mælandi á tvær
tungur, þó að þau taki vindversku
fram yfir þýzku, og þann veg hugsa
menn sér að útiloka hættuna á að
næsta vindversk kynslóð kasti þjóð-
emi sínu og gerist þýzk. Ég sá fullskýr
merki þess að þessi stefna er þegar
tekin að bera ávöxt, og margir þýzkir
foreldrar eru teknir að skilja að sá
sem kann bæði málin er betur settur
í þessum hluta Þýzkalands en sá sem
ekki kann annað en þýzku. Af sex
fyrstu börnunum sem luku námi í
gagnfræðiskólanum í Kottbus, kom
aðeins eitt frá alvindversku heimili.
Auðvitað er þetta undantekning, en
það sýnir að Vindur gera meira en
halda velli í þessu efni. í fyrsta sinn á
aldabili styrkja þeir nú menningar-
arf þann sem þjóðinni er falinn í sér-
stakri tungu.
Ég heimsótti einnig vindverska
kennaraskólann (æfingaskólann) og
miðstöðina þar sem gæzlufólk barna-
heimila er æft. Ekki þarf að taka fram
að slíkar stofnanir voru óhugsandi
áður.
Þarna er dagblað og fjöldi tímarita
fyrir börn og fullorðna, einnig trúar-
bragðarit (bæði lútersk og katólsk).
Bókmenntir á vindversku blómgast
og þegar er til álitlegur fjöldi bóka á
vindversku um sundurleitustu efni,
allt milli sérrannsókna vísindamanna
og létts kveðskapar. Allt er þetta
styrkt af hinu opinbera og stendur sig
vel í samkeppninni við þýzku ritin.
Rit almenns efnis á vindversku sem
ekki seljast upp á þremur árum eru
sett á útsölu.
Umferðarmerki og opinberar til-
kynningar á almannafæri eru á báð-
um málum í sveitaþorpunum og hið
sama er að gerast í borgunum þar sem
vindversk þjóðabrot eru. Annars eru
Vindur flestir bændur og búa í þorp-
um; það er ekki til nein alvindversk
borg, því að þær borgir sem standa á
vindverska svæðinu eru að verulegu
leyti orðnar þýzkaðar.
Þjóðerniskennd meðal Vinda hefur
56