Tímarit Máls og menningar - 01.03.1958, Side 68
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
verður að prenta tvenn upplög af
miklum hluta þess sem gefið er út,
einkum því sem börnum er ætlað, svo
og dagblöðum. Mörg tímarit birta þó
greinar á báðum málunum. í vind-
verskum skólum læra börn hina mál-
lýzkuna þegar frá 14 ára aldri.
í þessu sambandi gnæfir einn þátt-
urinn yfir alla aðra, og snertir raunar
tungu og þjóðerni allra þjóðabrota.
Þjóðerni og tunga þjóðabrota gufa
ekki upp af sjálfu sér, heldur er sú
framvinda árangur hægfara þvingun-
ar í þjóðfélagsmálum. En ef ein
stjórnarstefna getur dregið úr þrótti
þjóðarbrots, þá er önnur stefna þess
megnug að styrkja hann. Núverandi
stj órn Austur-Þýzkalands hefur alger-
lega snúið við blaðinu í þvingunar-
stefnu fyrri ríkisstjórna hvað Vindur
snertir. Hún hefur stigið það skref
sem áður hefur ekki þekkzt: að lög-
leiða jafnrétti vindverskra manna við
þýzka. Hún hefur gert hinar tvær
greinar vindverskrar tungu fullgildar
til allra opinberra nota. Það er ekki
einungis að hún sé hliðholl vind-
verskri menningu, heldur sýnir hún
einlægni sína með því að greiða
Vindum úr sjóðum ríkisins —
„menningarlegar endurbætur“ eins
og það er stundum kallað —, upp-
hæðir sem eru margfalt hærri en
Vindur hefðu nokkurn tíma sjálfir
getað lagt fram. Með þessu fé er
greiddur kostnaður af vindversku
skólahaldi, vindverskum blöðum og
öðrum þáttum vindversks menningar-
lífs. Almennir fundir um vindversk
mál eru stöðugt haldnir. Stofnaður
hefur verið þjóðkór hundrað manna
og hefur hann nýverið m. a. farið í
söngferð alla leið til Mongólíu. Sér-
stakri stofnun til rannsókna á vind-
verskri menningu hefur nýlega verið
komið á fót. Allar þessar framkvæmd-
ir styður ríkisvaldið.
Vitanlega eru ekki allir Vindur
ánægðir með ríkisstjórnina, og eru
þar ýmsar ástæður, en ekki er að efa
að hin nýja stefna í menningar- og
þjóðernismálum hefur ekki aðeins
aflað austurþýzku stjórninni þöguls
stuðnings, heldur einnig virkrar sam-
stöðu fjöldans alls af Vindum. Ýmsir
þeirra gátu þess við mig að nú fyrst
fyndist þeim þj óðernisvonir sínar
vera að rætast og ný svið að birtast.
Á. B. þýddi.
58