Tímarit Máls og menningar - 01.03.1958, Síða 76
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Reykjavíkurhöjn; myndin gerð af Jules Noel ejtir uppdrœtti höjundar.
Alla nóttina sigldum við meðfram
strandlengjunni í kyrrð, sem ekkert
rauf nema skröltið í skipsvélinni.
Hafið lá eins og spegill, líkt og það
hvíldist uppgefið eftir undangengnar
hamfarir. Á hægri hönd blasa við
kulnaðir eldgígir og lengra upp í
landinu sjáum við snæviþakinn tind
Heklu, en Vestmannaeyjar eru á
vinstri hönd .. . (Hér er sleppt úr
sögninni um Ingólf og Hjörleif og
hugleiðingum um landnám Islands).
Við komum í höfn um hádegisbil
daginn eftir, og ég verð að játa, að
það var hrífandi sjón, að sjá hið
glæsilega franska varðskip Pandora
skarta með rám og reiða á öldum
Faxaflóa. M. Favin-Lévéque skip-
stjóri og yfirmaður íslands-flotans,
tók á móti mér og kynnti mig fyrir
yfirmönnunum, sem virtust steinhissa
á því að hitta landa sinn á þessari
breiddargráðu. Það var eins og ég
hefði dottið niður úr tunglinu. Skip-
anir voru gefnar, og að stundu lið-
inni var einn hásetinn búinn að koma
bókum mínum fyrir í skáp í káetunni
og fötunum niður í kommóðu; í
stuttu máli: ég var kominn til Frakk-
lands.
Áður en við snúum okkur að fólki,
skulum við athuga hlutina ofurlítið
og landið, sem við vorum að koma
til. Fyrst varð ég fyrir vonbrigðum.
Hingað til hafði ég gert mér dapur-
legar og ömurlegar hugmyndir um
ísland, en nú fannst mér það næstum
hýrlegt ásýndar. Þegar maður rennir
augunum yfir jökla og gróðurlaus
fjöll, opnast grösugir dalir upp af lág-
66