Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1958, Side 93

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1958, Side 93
Á FERÐ UM SVEITIR ÍSLANDS annarri hliðinni. Hún var í erma- lausri, rauðri treyju, hvítröndóttri. Meðan ég teiknaði, sýndist mér fyrir- sætan verða smáskrítin á svipinn, (þið verðið að athuga, að þetta fólk hefir aldrei séð heldri mann), og þegar ég var búinn með höfuðið og kom að hálsmálinu, varð hún enn undirfurðulegri. Framan á brjóstinu var dálítill borði og vildi ég sjá betur, hvernig hann væri hnýttur. Gaf ég stúlkunni því merki um að greiða hann í sundur, en hún virtist mis- skilja mig, því að í einu vetfangi reif hún af sér slifsið. Ég flýtti mér að gera henni skiljanlegt með nýjum bendingum, að henni hefði skjátlazt, en hrekkleysi stúlkunnar og vandræði mín vöktu hjá mér hlátur, sem sjald- an heyrist í þessu drungalega landi. Börnin og konurnar hlógu mér til samlætis, en svipur þeirra varð brátt alvarlegur og undrandi, eins og þær vildu segja: Að hverju er maðurinn eiginlega að hlæja? ... Þegar ég vaknaði morguninn eftir, var ég þakinn öskuryki. Ég fór ekkert út, og kynntist þess vegna íslenzku heimilislífi allnáið. Það er ekki hægt í svo stuttri frásögn að lýsa öllu því furðulega, sem ég sá í þessum ein- kennilegu neðanjarðarbyrgjum, sem minna einna helzt á maurabú, að undanskildum einstaka bæjum. Það er skuggsýnt í þessum húsum, j afnvel á sumrin, birtan fellur inn um lítinn glugga eða Ijóra í þakinu, og vfir hann er strengdur líknarbelgur í stað glers. Ég var búinn að dvelja fulla tvo daga í Þjórsárholti, mig iðraði þess ekki, en brottför mín mátti ekki drag- ast lengur. Óveðrið geisaði stöðugt; æðisgengnir stormsveipir þeyttu rauðleitri ösku hátt upp í loftið, og myndaði þétt ský, sem skyggði á sól- ina. Fylgdarmaður minn gretti sig, er ég bað hann að leggja á hestana og búast til brottferðar. Það var sent út á engjar eftir karlmönnunum, sem virtust ekki sérlega áfjáðir í að ferja yfir Þjórsá í þessu veðri, en þegar þeir sáu, hve einbeittur ég var, bjugg- ust þeir til að fylgja mér. Þegar ég hafði kvatt eftir listarinn- ar reglum, fór ég á bak, og við riðum ofan hólinn niður að ánni. Þjórsá er straumhörð og djúp og um það bil 140 m. breið við ferjustaðinn. Vind- urinn öskraði og hvein og áin var eins og ólgandi hafsjór í öskuþykkn- inu. Þarna lá kringlótt kæna, sem minnti á risaskjaldböku. Klyfjarnar voru teknar af hestunum og látnar í bátinn, og þeir síðan reknir út í ána. Vesalings skepnurnar neituðu auð- vitað að halda áfram, en mennirnir tóku þá til að öskra og baða út öllum öngum til að hræða hrossin, og Tou- tou, hundur fylgdarmannsins, sem var langtum vitrari en eigandinn, gelti af öllum kröftum og beit þau í hælana. Hestarnir lögðust til sunds, en sneru við óttaslegnir og voru
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.