Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Síða 8

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Síða 8
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR ekki fiskveiðar hér við land fyrr en snemma á 15. öld, nutu íslendingar algers einkaréttar á miðunum. Þess- vegna var ekki þörf á sérstakri lög- gjöf um athafnir erlendra fiskimanna á þessu tímabili. Þar við bættist að Noregskonungur hafði bannað verzl- un og siglingar til íslands, sbr. t. d. samning hans við Þjóðverja 6. júlí 1294. Þar leyfði hann Þjóðverjum verzlun í Noregi, þó ekki „til hinna norðlægu landa handan Björgvinj- ar“. Þegar fram liðu stundir var bann þetta berum orðum látið ná til fisk- veiða við Island. Einnig varð það til þess að styrkja aðstöðu íslands í þess- um efnum að Noregskonungur hafði frá fornu fari krafizt óskoraðs for- ræðis yfir Norðurhöfum (dominium maris septentrionalis). Noregur og Danmörk voru í konungssambandi frá 1380 til 1814, og um skeið fór Danmörk ein með konungsvaldið á Norðurlöndum öllum. Danakonungar gátu því með miklum rétti krafizt for- ræðis yfir Norðurhöfum, enda viður- kenndu aðrir þjóðhöfðingjar rétt þeirra. Nægir í því efni að minna á sendiför erindreka Eiríks konungs af Pommern til Englands árið 1415. Árangur þeirrar farar varð sá að Englandskonungur bannaði 28. nóv. 1415 þegnum sínum fiskveiðar við ísland. Bann þetta kom þó ekki að til- ætluðum notum. Hannes Pálsson get- ur þess í skýrslu sinni 1425 að Eng- lendingar fari hér um með yfirgangi og ránum þó að öllum útlendingum sé bannað að koma til íslands, að við- lögðum eignamissi og dauðarefsingu. Og í Lönguréttarbót 26. nóv. 1450 er kveðið svo á að enskir menn og írsk- ir sem til íslands fara í óleyfi skuli vera óhelgir, en skip þeirra og fé upp- tækt. II Eftir að útlendingar tóku að sækja fiskveiðar hér við land hófst and- spyrna íslendinga, enda var þessi starfsemi talin brjóta í bága við kröfu konungs um forræði yfir Norður- höfum og einnig vera brot á fornum landsréttindum og lögum íslands. Hinir erlendu fiskimenn reyndu að koma sér upp verstöðvum í landi og hafa útræði þaðan. Til þeirra hefði þá leitað verkafólk frá bændum, en við þeirri þróun spornuðu konungur og innlendir valdamenn, enda hefði hún gereytt efnahags- og valdakerfi landsins. Og nú hófst einn athyglis- verðasti kaflinn í stjórnmálasögu ís- lenzkra miðalda. Alþingi tók iðulega fram fyrir hendurnar á konungi. Eins var um einstök héruð. Margir tugir dóma og samþykkta sem eru í raun réttri löggjöf þjóðar er skoðar sig fullvalda þrátt fyrir nýlendustöðuna sanna þetta. Með hinum fræga Píningsdómi 1. júh' 1490 reynir Alþingi að helga Is- lendingum einum grunnmiðin, og ó- gildir þar með tilslakanir konungs. 86

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.