Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Side 18

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Side 18
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR jarðneskan afla í að smíða helvélar til tortímingar lífi, en vakna svo við það einn góðan veðurdag, að skeiðið er á enda runnið, að enginn getur orðið sigurvegari ef þessum vélum lýstur saman, en eilíf nóttin ríkir éin yfir dauðum val. Hagnýtt mannvit hefur aldrei rist dýpra en á vorum dögum, það hefur jafnvel lagzt svo djúpt, að það hefur í hendinni tækin til að slökkva þann mannvitsneista, sem kviknaði í þessum heimi endur fyrir löngu á mörkum manns og dýrs. A þeirri stundu er vestrænir menn og austrænir skilja þetta er þess nokkur kostur að binda enda á örvæntingu og ótta kalda stríðsins og hefja annan og léttari brag á okkar góðu grænu jörð. Það er á valdi mannanna sjálfra hvort svo verður. Það er á valdi manna í austri og vestri hvort þeir láta sverfa til stáls og leita friðsam- legra samlífshátta. Stórveldum heimsins vestan tjalds og austan hefur verið lögð mikil á- byrgð á herðar. En ábyrgðin hvílir ekki á þeim einum. Ábyrgðin hvílir á öllum þjóðum, stórum og smáum, þegar svo er komið málum, að hvert blaktandi strá á jörðunni er í lífs- hættu statt. Þá rís hlutur smáþjóð- anna hæst þegar bera þarf friðarorð milli stórþjóða, sem hafa ekki losað sig úr þeirri blekkingu, að vopnavald geti enn skipað málum manna á hnett- inum. Hvert framlag, hversu lítið sem það kann að virðast, til þess að draga úr átökum hinna vestrænu og aust- rænu stórvelda, bera sættir á milli og aukinn skilning, er af hinu góða. Og því ber einnig að virða viðleitni Menningartengsla Islands og Ráð- stjórnarríkjanna til að efla vináttu með einu mesta stórveldi heims og hinni smæstu smáþjóð heims. Þetta er að vísu aðeins lítill þáttur í því alls- herjarverkefni okkar tíma að eyða fæðinni milli austurs og vesturs. Þrátt fyrir smæð okkar eru íslending- ar að sumu leyti betur búnir en marg- ir aðrir til þess að leggja fram sinn skerf í þessu efni. Landfræðilega og efnahagslega stöndum við á marka- skilum í tilverunni og verðum að horfa bæði í austur og vestur. Við getum að vísu sem einstaklingar haft ráð á að stara okkur blinda í eina átt, ef okkur lystir, en sem þjóð verðum við að líkjast því gamla rómverska goði Janusi og horfa bæði fram og aftur. Við leitum viðskipta við þjóð- ir í öllum heimsálfum og sendum syni okkar og dætur til náms í vestur- veg og austurveg eftir því sem verk- ast vill. Um árabil hafa Ráðstjórnar- ríkin verið einn stórtækasti viðskipta- vinur okkar og því verður heldur ekki gleymt, að þau standa nú ein allra svokallaðra stórvelda við hlið okkar og styðja málstað okkar í örlagamáli þjóðarinnar, landhelgismálinu. Þótt ekki væri fyrir annað þá hefðum við 96

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.