Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Side 36

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Side 36
Eyfirzk frásögn um móðuharðindiii T^lestir kannast við frásögn sr. Jiíns Steingrímssor.ar af Skaftáreldum, enda er liún merk heimild um móðuharðindin, jiar sem þau komu þyngst niður. En hve langt náðu áhrif þeirra út um önnur héruð og hvernig lýstu þau sér þar? Um það er efalaust eina beztu heimildina að finna í ritgerð merkisprestsins Jóns Jónssonar á Grund, síðar að Núpafelli í Eyjafirði. Sú ritgerð er með dagbókum hans, sein geymdar eru í Landsbóka- safni. Henni mun þó varla hafa verið gefinn sá gaiimnr, sem vert væri, og birtist hún Jjví hér á prenti. Jón prestur hefur verið ágætur athugunarmaður, íhugull og varfærinn í ályktunum og merkilega laus við alla hjátrú og guðræknismærð í þessum skrifum sínum, en á þeirri öld voru furðusögur mjög í hávegum liafðar. Er athyglisvert, að hann tekur það fram hvað eftir annað, að frásögnin sé miðuð við hans sveit, þó að Ijóst sé, að hann hefur einnig haft fregnir af því, sem annars staðar gerðist. En um það fellir hann sem fæsta dóma. Vel kemur vísindaleg hugsun hans fram í lok ritgerðarinnar, þar sem hann gerir grein fyrir því, hvernig hann hafi metið þær heimildir, er hann hafði um áhrif „mistursins". Það eykur og mjög sagnfræðilegt gildi ritgerðarinnar, að lýsingin á hegðan mistursins er byggð á dagbókum. En ég vil bæta því við, að hún geti líka haft hagnýta þýðingu. Hún vekur til umhugsunar um, hvað unnt sé að gera til þess að mæta slíkum ósköpum, ef þau dyndu á ný yfir þjóðina, en við því má alltaf búast í slíku eldfjallalandi. Þess hefur nokk- uð gætt í seinni tíð, að menn teldu sig allvel búna undir harðindi, og má vera, að svo sé, ef aðeins er átt við óáran vegna grasleysis, ísa og snjóa. Sumir munu lió draga það í efa. En hvernig færi, ef allur gróður eitraðist eins og í móðuharðindunum og veðrátta spilltist þar á ofan? Svari jiví liver fyrir sig. En það ætti að geta auðveldað mönnum að finna hið rétta svar, ef þeir lesa ritgerð Jóns prests á Grund. Ritgerðin er hér prentuð eftir handritinu Lbs. 332, 8vo, í Landsbókasafni, en í því bindi eru einnig dagbækur höfundarins frá þessum árum. Stafsetning höfundar er að þeirrar tíðar hætti, en er hér færð til nútímavegar. Ártöl skrifar höfundur venjulega stytt, þ. e. —83 =1783, og eru þau leyst upp hér. Innskot, sem hér eru gerð til skýringar, eru sett innan hornklofa, [ ]. Páll Bergþórsson. 114

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.