Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Síða 39
EYFIRZK FRÁSÖGN UM MÓÐUHARÐINDIN
13da Með dimmasta móti og mesti
sólarroði, viðlíkt og 21ta Junii.
14da Sér valla næstu fjalla skil af
misturinu, og roði sami fyrir sólu.
15da Nú svo dimmt sem heið-
myrkursþoka, sá naumast næstu bæja
skil, en albyrgði sólu og fjöll.
16da Eins og í gær. Þó sá nú
nokkrum sinnum til sólar, fagur-
rauðrar framan af degi, en að líð-
andi degi vóx svo dimman að ei sá
gjörla til fjárhúsa á vellinum.
17da Þokublandið mistur og jafn-
frammi miklir þrumudunir.
18da Mistur með þoku.
19da Ærið mistur, þó ekki í mesta
lagi.
20ta Eins.
21ta Sáust ei framfjarðar fjöll og
valla þau nálægari.
22an Með sama slag.
23a Lítið mistur, hjá því að hing-
að til verið hefir.
24ða Eins lítið.
25ta Ber valla á misturi.
26ta Eins.
27da Meðaldimmt og sólarroði.
28da Þoku blandið.
29da Mikið mistur, byrgð fram-
fjöll.
30ta Lítið.
31ta Mikið, einkum síðdags, og
sólarroði að því skapi.
/ Augusto.
lta Mikið mistur að morgni dags,
en fór minnkandi.
2n Meðallags mikið.
3a I meira lagi.
4ða Síðdegis nær í mesta lagi,
grillti ei framfjöll hér í firðinum úr
miðri sveit, og sólarroði nokkur.
5ta Mikið, en þokublandið.
6ta Mikið, án þoku, og ærinn roði
fyrir sólu.
7da Sömuleiðis.
8da Minna, og minni sólarroði.
9da Lítið, enda bar og ei á roða.
lOda A sömu leið.
llta Enn nú þannig.
12ta Mikið, og eins roðinn bæði
kveld og morgun.
13da Aftur minna mistur, sást ei
roði.
14da Bar ei á misturi.
15da Vottar aðeins til bláma í
fjöllum.
16da Nú aftur yfrið síðdags, svo
naumast grillti framfjöll og roði þó
ei sem misturinu svaraði.
17da Lítið framandags, vóx við
kveld og sólarroði.
18da Vóx þegar á daginn leið, svo
valla grillti Núpufell frá Grund.
19da Lítið.
20ta Mikið, blánaði valla fyrir
Núpufelli. Sólarroði, einkum að
kveldi, nær því sem í mesta lagi.
21ta Lítið, einasta blámaryk í
fjöllum.
22n Eins.
23ja Nú aftur mikið, sér djarfann
til N[úpu]fells og stundum alls ekki.
24ða Mikið, og sló því nú venju
117